Arnar gerði Víkinga að bikarmeisturum 2019 á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari liðsins, eftir að hafa áður verið aðstoðarmaður Loga Ólafssonar í Víkinni. Honum er ætlað að koma liðinu nær bestu liðum landsins á næstu árum.
„Vonandi náum við að stríða aðeins stóru körlunum. Fyrir mér er þetta bara rökrétt skref. Mér líður ógeðslega vel hérna í Fossvoginum. Það er vel stutt við bakið á mér. Ég fæ að gera nánast það sem ég vill gera. Það er engin ástæða til að fara fyrst ég hef það gott hérna,“ sagði Arnar í viðtali við Guðjón Guðmundsson í dag en viðtalið má sjá hér að neðan.
Víkingar hafa misst öfluga leikmenn á borð við Óttar Magnús Karlsson, Ágúst Eðvald Hlynsson og Davíð Örn Atlason frá síðustu leiktíð. Pablo Punyed er á meðal þeirra sem hafa komið til félagsins. Arnar er ánægður með leikmannahóp sinn í dag:
„Svo er það bara þannig að við þjálfararnir viljum alltaf fleiri og fleiri leikmenn, og erum alltaf að leita. En eins og staðan er í dag þá eru allir heilir, Covid hjálpaði okkur því það voru tveir leikmenn sem þurftu á smávægilegri aðgerð að halda og fengu að bæta úr því í fríinu núna. Þegar kemur að fyrsta leik held ég að allir séu því í nokkuð fínu standi.
Við erum alltaf að leita. Ég held að öll lið séu þannig, sérstaklega þau sem hafa háar væntingar. En ef að við færum í mótið með þennan hóp þá væri ég bara mjög sáttur. Það er mjög góð blanda þarna. Reynslumiklir leikmenn og ungir og efnilegir leikmenn. Leikmenn sem eru bara góðir. Ég held að við munum gefa hvaða liði sem er góðan leik og sé fram á skemmtilegt mót,“ sagði Arnar.
Víkingar ollu vonbrigðum á síðustu leiktíð og enduðu í 10. sæti.
„Það fór allt til fjandans sem þangað gat farið. En það fer í reynslubankann, ekki bara hjá leikmönnum heldur líka hjá mér. Þó að ég sé reynslumikill í fótbolta þá er ég tiltölulega ungur þjálfari og læri af þessu. Þess vegna er ég líka ánægður með að vera áfram hjá Víkingum. Þetta gefur mér það „platform“ að læra meira,“ sagði Arnar en viðtalið við hann má sjá hér að ofan.