Lögregla hafði verið kölluð til eftir að byssuskot heyrðist og kom til eftirfarar þar sem Adam Toledo reyndi að flýja undan lögregluþjóni. Hann stoppaði svo og á mjög stuttum tíma var hann skotinn til bana.
Myndefnið sem opinberað var í gærkvöldi sýnir hvernig Toledo staðnæmdist við girðingu, þar sem hann virtist taka skammbyssur úr buxnastreng sínum og kasta henni á bak við girðinguna, áður en hann lyfti höndum sínum. Í sömu andrá skaut lögregluþjónninn Eric Stillman hann til bana, með einu skoti sem lenti í brjósti Toledo.
Myndefnið sýnir að þegar Stillman skaut Toledo var táningurinn með tómar hendur á lofti. Í heildina liðu nítján sekúndur frá því Stillman steig úr bíl sínum þar til hann skaut Toledo til bana.
Byssan fannst svo á bak við girðinguna.
Í myndbandinu hér að neðan er héraðsmiðillinn ABV7 Chicago búinn að skeyta saman myndböndum sem sýna banaskotið og aðdraganda þess. Óbreytta útgáfu úr vestisvél Stillman má sjá hér á Youtubesíðu AP fréttaveitunnar. Þar má einnig sjá eftirmála banaskotsins.
Toledo var af rómönskum ættum og í aðdraganda þess að lögreglan birti myndbandið hvatti Lori Lightfoot, borgarstjóri Chicago, íbúa til að sýna stillingu. Eigendur fyrirtækja í miðbæ borgarinnar settu hlera fyrir glugga fyrirtækja sína vegna mögulegra mótmæla og jafnvel óeirða.
AP fréttaveitan segir nokkra tiltölulega smáa hópa hafa mótmælt við lögreglustöð í borginni og farið kröfugöngur til miðborgarinnar en umfangsmikil mótmæli hafi ekki farið fram.
Lögmaður lögregluþjónsins sendi út tilkynningu þar sem hann segir banaskotið hafa verið réttmætt. Toledo hafi tekið upp byssu, litið á Stillman og snúið sér í átt að honum. Þá hafi lögregluþjónninn staðið frammi fyrir lífshættulegu ástandi og þurft að bregðast fljótt við.
Lögmaður fjölskyldu Toledo segir hins vegar að myndbönd af atvikinu sýni annað. Ef Toledo hafi verið með byssu hafi hann kastað henni frá sér og hann hafi verið að fylgja skipunum Stillman.
Lögregluþjóninn hafi skipað honum að sýna hendur sínar og það hafi Toledo verið að gera þegar hann var skotinn til bana.