Fótboltaguðirnir með Atlético í liði Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. maí 2021 16:46 Leikmenn Atlético fagna því sem reyndist vera sigurmarkið. EPA-EFE/Manuel Lorenzo Marcos Llorente tryggði Atlético Madrid gríðarlega mikilvægan 1-0 útisigur á Elche í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í dag. Mikil dramatík var í uppbótartíma leiksins.
Luis Suarez hafði komið boltanum í netið fyrir gestina á 16. mínútu en markið var dæmt af. Sjö mínútum síðar skoraði Llorente hins vegar eftir sendingu Yannick Carrasco og það mark stóð. Staðan 1-0 toppliðinu í vil og þannig var hún í hálfleik. Þannig var hún raunar allt til leiksloka en á fyrstu mínútu uppbótartíma fengu heimamenn gullið tækifæri til að jafna. Llorente var þá hársbreidd frá því að fara úr hetju í skúrk en hann fékk knöttinn í hendina innan vítateigs og vítaspyrna dæmd. Fidel Chaves steig á punktinn fyrir Elche en spyrna hans fór í stöngina og út. Inn vildi boltinn ekki og Atlético vann ómetanlegan 1-0 sigur. Atlético er því með fimm stiga forystu á bæði Real Madrid og Barcelona en síðarnefndu liðin eiga bæði leik til góða. Atlético á fjóra leiki eftir í deildinni en Real og Barca eiga fimm hvort. Sevilla kemur svo í 4. sætinu með 70 stig. Marcos Llorente scores his 12th La Liga goal of the season to give Atletico Madrid the lead at Elche pic.twitter.com/C2d84Gu1M2— Goal (@goal) May 1, 2021 Elche hefði þurft á stigi að halda í dag en liðið er sem stendur í fallsæti á markatölu. Real Valladolid er með jafn mörg stig og Deportivo Alaves er þar stigi fyrir ofan.
Fótbolti Spænski boltinn Mest lesið Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti Fleiri fréttir Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Sjá meira