Ísraelsher segir fimmtán hinna látnu á Gasa vera meðlimi Hamas og Islamic Jihad. Tveir leiðtogar Islamic Jihad féllu í loftárás á morgun.
Sex Ísraelar eru sagðir hafa særst þegar eldflaug lenti á fjölbýlishúsi í Ashkelon.
Ríki heimsins hafa kallað eftir ró og að árásum á báða bóga verði hætt. Óljóst er hvort af því verður en talsmaður hers Ísraels gaf í skyn í samtali við blaðamenn í morgun að ekki stæði til að hætta árásum gegn Hamas.
Ísraelski herinn segir að rúmlega 300 eldflaugum hafi verið skotið frá Gasa frá því í gær. Stór hluti þeirra var skotinn niður og her Ísraels segir þriðjung þeirra hafa fallið til jarðar á Gasa, samkvæmt frétt Reuters. Herinn segist hafa gert árásir á 130 skotmörk á Gasa.
Átökin í gær hófust þegar Hamas byrjaði að skjóta tugum eldflauga að Ísrael og þar að auki að Jerúsalem, en það hafði ekki gerst síðan í stríðinu 2014. Eldflaugunum var skotið eftir áhlaup ísraelskra lögregluþjóna gegn hópi Palestínumanna í al-Aqsa moskuna í Jerúsalem í gærmorgun.
Al-Aqsa moskan er stödd á Musterishæð, sem er einnig heilög gyðingum.
Nokkra daga í röð hafði áhlaup verið gert gegn moskunni, sem er einn helgasti staður múslima. Gúmmíkúlum var skotið að Palestínumönnum, auk þess sem hvellsprengjum og táragasi var beitt.
Sjá einnig: Mikil átök milli mótmælenda og lögreglu á Musterishæð
Hamas hafði gefið Ísraelsmönnum þann úrslitakost að flytja lögregluþjóna sína á brott frá moskunni, áður en eldflaugunum var skotið í gær.
Minnst 700 Palestínumenn særðust í áhlaupi lögreglunnar og nærri því 500 þurftu á sjúkrahús til aðhlynningar, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Þar segir einnig að Arabar í Ísrael hafi haldið mótmæli víða í nótt vegna ástandsins í Ísrael og um ein stærstu mótmæli Palestínumanna í Ísrael um árabil sé að ræða.
Mikil spenna hefur verið í Jerúsalem síðustu daga og hefur ítrekað komið til átaka milli lögreglu og mótmælenda. Spennuna má rekja til þess að Ísraelar ætla sér að reka Palestínumenn frá hverfi í Austur-Jerúsalem, sem landtökumenn hafa sölsað undir sig. Palestínumenn vilja að borgarhlutinn verði höfuðborg sjálfstæðs ríkis þeirra í framtíðinni en Ísraelar hafa hersetið svæðið frá 1967.
#UPDATE The United Nations rights office said Tuesday it was "deeply concerned" at the escalation of violence in the occupied Palestinian territories, east Jerusalem and Israel pic.twitter.com/AmQNx83c5e
— AFP News Agency (@AFP) May 11, 2021