Átta dagar eru eftir af þinginu og telur ráðherrann það allt of stuttan tíma til að ná sátt um málið.
„Við munum auðvitað halda áfram að reyna að tala saman stjórnarflokkarnir um það hvaða leiðir séu færar. En ég held að það sé ekki gott málsins vegna einfaldlega að fara að keyra það í gegn á einhverju samkomulagi á síðustu dögunum. Það er ekki málið,“ sagði Sigurður Ingi í Víglínunni í dag.
Hann segir hugmyndina heillandi og því þurfi að eiga sér meira samtal í samfélaginu. „Mér finnst það ekki vera tap nokkurs að það sé ekki hægt að framkvæma það á einu kjörtímabili. Í raun og veru er þetta það stórt verkefni að það þarf lengri aðdraganda.“
Hann segir Framsóknarflokkinn hafa sett fyrirvara við málið inn í stjórnarsáttmálann og enn sé verið að fjalla um vissa þætti í því sem náist ekki að klára á þessu þingi. Því sé útilokað að málið fari í gegn í sinni núverandi mynd.
Það hafi mistekist að sætta alla sem koma á málinu, sérstaklega þá sem búa næst þjóðgarðinum. „En af því að hugmyndin í heild sinni er heillandi en hún er svo stór að hún þarf einfaldlega meira samtal í samfélaginu. Mér finnst það ekki vera tap nokkurs að það sé ekki hægt að framkvæma það á einu kjörtímabili. Í raun og veru er þetta það stórt verkefni að það þarf lengri aðdraganda.“

Stækka kannski Vatnajökulsþjóðgarð í staðinn
Sigurður Ingi var þá spurður hver möguleg útkoma gæti verið í málinu á yfirstandandi þingi. Er verið að skoða að hafa þjóðgarðinn minni?
„Það er verið að skoða hvernig við getum tryggt að það sem að þó er búið að nást sátt um í samtalinu, hvernig við getum haldið því áfram og ég ætla ekkert að útiloka að það finnist einhverjar leiðir til þess en þessi útfærsla hún gengur ekki upp og getur ekki orðið að lögum núna,“ sagði hann og nefndi möguleikann á því að Vatnajökulsþjóðgarður yrði stækkaður nokkuð í staðinn.
Var þetta klúður hjá umhverfisráðherra?
„Ég ætla nú ekki að segja það. Þetta er stór hugmynd og til þess að hún geti gengið fram þarftu að leggja mjög mikið á þig til að fá allt samfélagið til að geta litið á þetta sem sinn þjóðgarð,“ sagði Sigurður Ingi. Það hafi ekki tekist enn.