
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mætir í Víglínuna til Heimis Más Péturssonar fréttamanns á Stöð 2 í dag til að ræða hvaða mál muni hugsanlega daga uppi en þegar hefur komið fram að frumvarp umhverfisráðherra um hálendisþjóðgarð muni ekki ná fram að ganga fyrir kosningar.
Þá eru miklar efasemdir um þingmannafrumvarp Katrínar um breytingar á stjórnarskránni. Ef það verður ekki að hluta eða öllu leyti afgreitt út úr nefnd í þessari viku verður væntanlega engin þörf á að boða þing saman í nokkra daga í ágúst til að afgreiða þau mál.

Í seinni hluta Víglínunnar fær Heimir Már þau Helgu Völu Helgadóttur þingmann Samfylkingarinnar og formann velferðarnefndar og Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins til sín. Miðflokkurinn hélt landsþing um helgina þar sem meðal annars var sterkt kveðið á um stefnuna í málefnum hælisleitenda og mögulega lögleiðingu neysluskammta fíkniefna.

Þau Helga Vala og Sigmundur Davíð munu einnig leggja dóm sinn á frammistöðu ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu sem senn er á enda. Ef tími vinnst til verður einnig rætt um áherslur flokkanna fyrir komandi kosningar í lok September.
Víglínan er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 17:40 og fer fljótlega eftir útsendingu inn á Stöð 2 + þar sem áskrifendur geta horft á þáttinn.