Barnaþrælkun færist í aukana á nýjanleik Heimsljós 14. júní 2021 14:01 Gunnisal Samkvæmt Alþjóða vinnumálastofnuninni (ILO) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) eru alls 160 milljónir barna í nauðungarvinnu. Börnum sem neyðast til að vinna hefur fjölgað um 8,4 milljónir á síðustu fjórum árum og samkvæmt nýjum gögnum frá Alþjóða vinnumálastofnuninni (ILO) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) eru alls 160 milljónir barna í nauðungarvinnu. Í nýrri skýrslu fyrrnefndra stofnana segir að ástæða sé til að óttast að barnaþrælkun færist enn meira í aukana vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Alþjóðadagur í baráttunni gegn barnaþrælkun var síðastliðinn laugardag, 12. júní. Í skýrslu ILO og UNICEF kemur fram að í fyrsta sinn um tuttugu ára skeið hafi barnaþrælkun aukist en á tímabilinu frá 2000 til 2016 fækkaði börnum í nauðungarvinnu um 94 milljónir. Í skýrslunni er bent á umtalsverða fjölgun barna á aldrinum fimm til ellefu ára í nauðungarvinnu en börn á þessum aldrei eru nú um helmingur allra barna sem falla undir skilgreiningu um barnaþrælkun. Þá hefur börnum á aldrinum fimm til sautján ára sem vinna hættuleg störf – líkleg til að skaða heilsu þeirra, öryggi eða siðferði – fjölgað um 6,5 milljónir frá árinu 2016 og teljast nú vera alls 79 milljónir. Ástandið að þessu leyti er verst í Afríku sunnan Sahara en þar fara saman mikil fólksfjölgun, endurtekin áföll, mikil fátækt og ófullnægjandi barnavernd, sem leiða til þess að börnum í nauðungarvinnu hefur fjölgað um 16,6 milljónir á síðustu fjórum árum. Í skýrslunni segir að óttast sé að barnaþrælkun aukist vegna heimsfaraldursins. Níu milljónir barna til viðbótar eigi á hættu að vera þröngvað til starfa fyrir árslok 2022 og spálíkan geri ráð fyrir að sú tala geti hækkað upp í 46 milljónir. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Ofbeldi gegn börnum Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Innlent Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Innlent Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Erlent Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík Innlent Tala látinna komin yfir þúsund Erlent RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Innlent „Það er skítkalt hérna“ Erlent Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Innlent Fullveldi Íslands háð því að alþjóðalög séu virt Innlent Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Ofbeldi gegn börnum Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Innlent Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Innlent Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Erlent Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík Innlent Tala látinna komin yfir þúsund Erlent RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Innlent „Það er skítkalt hérna“ Erlent Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Innlent Fullveldi Íslands háð því að alþjóðalög séu virt Innlent Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Innlent