Þjónustan er einfaldlega sú að fyrir áskriftarverð fæst ráðgjöf og uppsetning á hleðslustöð, rekstur stöðvarinnar og þjónusta allan sólarhringinn ásamt uppfærslum. Verð er 2.900 kr. á mánuði fyrir sérbýli og 4.400 kr. fyrir fjölbýli.
Notendur þurfa að hafa ON lykil og hver og einn greiðir fyrir sína notkun í viðbót við áskriftarverðið.
Stöðvarnar sem ON ætlar að bjóða upp á með þessari þjónustu eru þriggja fara 22 kW stöðvar. Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu ON.