Silja var í öðru sæti á lista flokksins fyrir síðustu þingkosningar og sóttist eftir að halda þeirri stöðu sinni fyrir þær næstu í prófkjöri Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi sem fór fram síðustu helgi.
Sjá einnig: Kveðja Alþingi misviljug eftir dramatískt kjörtímabil.
Sigurður Ingi Jóhannsson fékk þar kosningu í fyrsta sætið og Jóhann Friðrik Friðriksson í annað. Silja Dögg hafnaði í þriðja sæti í prófkjörinu en hún gaf það þá út að hún myndi ekki þiggja það.
Hún hefur þó greinilega þegið heiðurssæti listans, sem var samþykktur á fundi kjördæmisþings í dag:
1. Sigurður Ingi Jóhannsson, Hrunamannahreppur
2. Jóhann Friðrik Friðriksson, Reykjanesbæ
3. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Árborg
4. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Reykjanesbæ
5. Njáll Ragnarsson, Vestmannaeyjar
6. Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Hornafjörður
7. Lilja Einarsdóttir, Rangárþing eystra
8. Daði Geir Samúelsson, Hrunamannahreppur
9. Stefán Geirsson, Flóahreppur
10. Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, Rangárþing ytra
11. Ragnhildur Hrund Jónsdóttir, Mýrdalshreppur
12. Inga Jara Jónsdóttir, Árborg
13. Anton Kristinn Guðmundsson, Suðurnesjabær
14. Jóhannes Gissurarson, Skaftárhreppur
15. Gunnhildur Imsland, Hornafjörður
16. Jón Gautason, Árborg
17. Drífa Sigfúsdóttir, Reykjanesbær
18. Haraldur Einarsson, Flóahreppur
19. Páll Jóhann Pálsson, Grindavík
20. Silja Dögg Gunnarsdóttir, Reykjanesbær