Í tilkynningu frá MMR segir að stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 54,9 prósent og hafi aukist um rúmt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 53,7 prósent.
- Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,4% og mældist 27,0% í síðustu könnun.
- Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,3% og mældist 8,8% í síðustu könnun.
- Fylgi Pírata mældist nú 12,2% og mældist 13,1% í síðustu könnun.
- Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,9% og mældist 12,4% í síðustu könnun.
- Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,6% og mældist 11,2% í síðustu könnun.
- Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,1% og mældist 7,8% í síðustu könnun.
- Fylgi Miðflokksins mældist nú 6,6% og mældist 7,3% í síðustu könnun.
- Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,5% og mældist 5,5% í síðustu könnun.
- Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,3% og mældist 5,3% í síðustu könnun.
- Stuðningur við aðra mældist 1,2% samanlagt.
Könnunin var framkvæmd dagana 24. júní til 6. júlí 2021 og var heildarfjöldi svarenda 2.041 einstaklingur, 18 ára og eldri.