Símamótið fór fram um helgina en þar kepptu þrjú þúsund stelpur í fimmta, sjötta og sjöunda flokki í fótbolta. Á mótið vantaði stelpurnar í fimmta flokki KR þar sem kórónuveirusmit í liðinu setti strik í reikninginn.
„Daginn áður en við heyrðum fréttirnar þá fóru allar KR stelpurnar saman í sund og svo þegar við komum heim var okkur sagt að við þurftum allar að fara í sóttkví og kæmumst ekki á Símamótið,“ sagði Steinunn, knattspyrnukona í 5. flokki KR.
Hvernig leið ykkur þegar þið heyrðuð að þið mættuð ekki taka þátt á mótinu?
„Mjög illa, ekki vel,“ sagði Steinunn, knattspyrnukona í 5. flokki KR.
Samhliða því að sparka í bolta í sóttkvínni brölluðu þær ýmislegt.
Borðuðu nammi og héldu á lofti í sóttkví
Hvað gerðuð þið í sóttkví?
„Borðaði fullt af nammi. Já ég var eiginlega bara í símanum og borðaði, það er það eina sem ég gerði. Já maður gerði ekkert í þessu sóttkví,“ sögðu Rakel, Ingibjörg og Togga, knattspyrnukonur.
Íunn Eir Gunnarsdóttir, þjálfari liðsins fékk atvinnumenn í íþróttinni til að senda stelpunum kveðjur og úr varð hvatningarmyndband.
Veigra sér ekki við því að keppa við meistaraflokk
„Við sendum miklar baráttukveðjur. Þið komið bara sterkari út úr þessu: Áfram KR,“ sagði Ingunn Haraldsdóttir, fyrirliði meistaraflokks kvenna í KR.
„Sendum ykkur baráttu- og stuðningskveðjur og vorum svona að spá hvort þið þorið kannski að taka leik við okkur meistaraflokk karla í KR í staðinn þegar þið eruð lausar úr sóttkvínni?“ spyr Pálmi Rafn Pálmason, miðjumaður hjá meistaraflokki karla.
Steplurnar veigra sér ekki við því. Stórleikurinn fer að öllum líkindum fram í næstu viku.
Ætlið þið ekki að vinna þá?
„Jú við ætlum að rústa þeim,“ segja stelpurnar í kór.
Hverjir eru bestir?
„KR.“ hrópa stelpurnar.