Hitametum var víða splundrað í hitabylgjunni í Oregon og Washington í Bandaríkjunum og Bresku Kólumbíu í Kanada í júní þegar hitinn fór víða vel yfir 40°C. Svæðin eiga það sameiginlegt að íbúar þar eru ekki vanir slíkum hita og fæstir eru með loftkælingu heima hjá sér.
Í Washington-ríki hafa yfirvöld opinberlega rakið 95 dauðsföll til hitans í vikunni sem hitabylgjan gekk yfir. Í Oregon eru þau talin hafa verið 96 til þessa. Inni í þeim tölum er fólk sem er talið hafa látist af hitaslagi en mögulega eru margir vantaldir sem hitinn dró til dauða. Í Washington létust tæplega 450 fleiri en vanalega og nærri því 160 í Oregon.
Greining New York Times á svonefndum „umframdauðsföllum“, fjölda dauðsfalla sem er hærri en vænta mætti, á svæðinu bendir til þess að raunverulegur fjöldi látinna sé mun hærri. Um 600 fleiri dauðsföll urðu en vanalega í ríkjunum tveimur.
Aðeins 60 dauðsföll voru rakin til Covid-19 á tímabilinu. Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna segir að sú tala sé ekki endanleg og hún gæti hækkað á næstu vikum þegar nýjar upplýsingar berast frá ríkjunum. Umframdauðsföllinn í hitabylgjuvikunni voru þó mun fleiri en í nokkurri viku kórónuveirufaraldursins.
Engu að síður segir Greg Wellenius, prófessor í umhverfisheilbrigðisfræði við Háskólann í Boston, að greining bandaríska blaðsins sé í fullu samræmi við það sem vitað er um að langavarandi hiti sé hættulegur og geti leitt til umframdauðsfalla.
„Þegar það er mjög heitt úti fjölgar sannarlega dauðsföllum vegna hitaslags en dauðsföllum vegna alls konar annarra sjúkdóma fjölgar einnig,“ segir Kate Weinberger, umhverfisfaraldsfræðingur við Háskólann í Bresku Kólumbíu, við blaðið.
Hitinn geti þannig meðal annars dregið fólk með hjarta- og æðasjúkdóma og öndunarfærasjúkdóma til dauða.
Í viðbragðsstöðu vegna nýrrar hitabylgju
Önnur hitabylgja gengur nú yfir norðvesturríkin og stóran hluta Bandaríkjanna. Viðvörun vegna hita er í gildi í Seattle í Washington fram á laugardagskvöld en þar hafa yfirvöld opnað kælistöðvar og borgarstarfsmenn eru í viðbragðsstöðu til að takast á við skemmdir á innviðum.
Í Portland í Oregon náði hitinn 39°C í gær og átti hann að verða enn meiri í dag og á morgun, að sögn AP-fréttastofunnar. Yfirvöld þar reyna nú að huga að viðkvæmum hópum eins og heimilislausum sem urðu illa úti í hitabylgjunni fyrr í sumar.
Vísindaleg greining á hitabylgjunni bendir til þess að nærri útilokað sé að hún hefði orðið svo öflug ef ekki væri fyrir hnattræna hlýnun af völdum manna.
Í nýrri skýrslu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) sem kom út á mánudag kom fram að meiri vissa sé nú um tengsl hnattrænnar hlýnunar og vaxandi veðuröfga eins og hitabylgna.
Áætlað er að hitabylgjur sem áttu sér stað um það bil einu sinni á áratug á árunum 1850 til 1900 þegar menn höfðu ekki áhrif á loftslag jarðar séu nú tæplega þrefalt tíðari og meira en einni gráðu hlýrri vegna þeirrar hlýnunar sem þegar hefur átt sér stað. Tíðni og ákafi hitabylgna eigi eftir að aukast enn haldi hlýnun jarðar áfram.