Viktor Gísli til eins sterkasta liðs Evrópu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. september 2021 11:16 Viktor Gísli Hallgrímsson hefur leikið með íslenska landsliðinu síðan 2019. vísir/vilhelm Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, hefur samið við Nantes, eitt sterkasta lið Evrópu.
Viktor Gísli gengur í raðir Nantes næsta sumar líkt og króatíski markvörðurinn Ivan Pesic. Þeir taka stöður Emils Nielsen, sem fer til Barcelona, og Mickaëls Robin, sem leggur skóna á hilluna eftir tímabilið. formeront la paire de gardiens du @HBCNantes à partir de 2 0 2 2 Plus d'infos https://t.co/Os8SVC2vwO#WeHfamily pic.twitter.com/KrabQ769HZ— HBCNantes (@HBCNantes) September 6, 2021 Viktor Gísli, sem er 21 árs, kemur til Nantes frá GOG í Danmörku þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö ár. Hinn 32 ára Pesic kemur frá Meshkov Brest í Hvíta-Rússlandi. Hann er þrautreyndur og hefur leikið með króatíska landsliðinu á nokkrum stórmótum. Á síðasta tímabili endaði Nantes í 3. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar og komst í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu þar sem liðið tapaði fyrir Barcelona. Nantes komst í úrslit Meistaradeildarinnar fyrir þremur árum. Viktor Gísli er uppalinn hjá Fram og sló í gegn með liðinu tímabilið 2016-17. Fram komst þá í undanúrslit um Íslandsmeistaratitilinn og bikarúrslit. Hann lék með íslenska landsliðinu á EM 2020 og HM 2021 og var í U-19 ára landsliðinu sem vann silfur á EM 2018.
Franski handboltinn Mest lesið Sakaði syni sína um „fullkomið mannorðsmorð“ á leynilegri upptöku Sport Einn besti dómari landsins fær ekki leik Körfubolti Var kóngurinn 1995 en „algjörlega á botninum“ 1997 Íslenski boltinn Vilja VAR á Íslandi og finnst Gylfi langbestur Íslenski boltinn Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla Íslenski boltinn „Meðvituð um að þetta er samfélagslegt vandamál“ Íslenski boltinn Jokic skoraði 61 stig en Westbrook eyðilagði allt Körfubolti Segir að það hafi ekki verið mistök að selja Elanga Enski boltinn „Hann virðist bara ekkert vera þannig þjálfari“ Íslenski boltinn Félögin spá Víkingum titlinum Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Eins og draumur að rætast“ Íslendingalið í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar Þórey aftur inn í landsliðið: „Þurftum bara aðeins að hreinsa andrúmsloftið“ Valskonur fá seinni leikinn heima KA kaus að losa sig við þjálfarann Íslendingalið í bullandi tapi og getur ekki sótt fleiri stjörnur Köstuðu blysum en segja hina hafa hrækt og hellt bjór á leikmenn „Okkar besti leikur á tímabilinu“ „Forréttindi að fá að vera hluti af þessu liði“ Skara í undanúrslit eftir vítakeppni Uppgjörið: Valur - Iuventa Michalovce 30-20 | Valskonur í úrslit Evrópubikarsins fyrstar íslenskra liða Andrea í undanúrslit eftir dramatík í vító „Getum brotið blað í sögu handboltans“ „Getum gert góða hluti gegn þessu liði“ Haukar úr leik í Evrópubikarnum eftir stórt tap úti í Bosníu Þórsarar tryggðu sér úrvalsdeildarsæti með sigri í lokaumferðinni Elvar markahæstur í endurkomu úr meiðslum „Þær eru steiktar en þær eru líka geggjaðar“ Andri Már markahæstur en Ýmir hafði betur í Íslendingaslagnum Aldís Ásta og félagar í lykilstöðu eftir stórsigur Sveinbjörn bikarmeistari í Ísrael „Væri helvíti gaman að enda ferilinn svona“ Sorrí Valdi og allir hinir Var ósátt en er nú mætt aftur í landsliðið „Trúi ekki öðru en að við fáum fullt hús af áhorfendum“ Varði fimm skot gegn gömlu félögunum Uppgjörið: Grótta - Valur 19-30 | Meistararnir eru deildarmeistarar Oddaleikur framundan milli Íslendingaliðanna Minnkuðu muninn í eitt mark úr lokaskotinu Sló (líklega) metið yfir flest mörk að meðaltali í leik Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Iuventa Michalovce 30-20 | Valskonur í úrslit Evrópubikarsins fyrstar íslenskra liða