„Hið opinbera á ekki að leiða launaþróun í landinu. Þar á hinn almenni markaður að draga vagninn og þá sérstaklega hinar gjaldeyrisskapandi útflutningsgreinar,“ sagði hún.
„Hið opinbera á svo að fylgja í kjölfarið í sama takti. Það eru takmörk fyrir því hvað launakostnaður getur vaxið án þess að stórslys verði raunin. Það verður við öll að hafa í huga í komandi kjaraviðræðum.“
Aldís sagði að mörg sveitarfélög stæðu enn vel en sum stæðu þó höllum fæti. Líkur væru á að fjárhagsstaða sveitarfélaga myndi versna í ár frá fyrra ári, „meðal annars vegna aukinna launaútgjalda, sem virðast vera langt umfram tekjuaukningu vegna útsvars.“
Hún hafði áður getið þess að fjárhagsstaða sveitarfélaganna hafi farið versnandi þegar árið 2019, en aftur á móti hafi svartsýnustu spár um neikvæða þróun vegna Covid-faraldursins ekki ræst á síðasta ári.
Því þakkaði hún „víðtækum og markvissum mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar og Alþingis í efnahagsmálum sem komu sveitarfélögunum mjög til góða“.
Fjármálaráðstefnan stendur yfir fram eftir degi á Hilton Reykjavík Nordica og er í beinni útsendingu sem má sjá hér að neðan.