Ekki útilokað að bólusetning hafi raskað tíðahring kvenna í nokkrum tilvikum Eiður Þór Árnason skrifar 7. október 2021 16:44 Lyfjastofnun og embætti landlæknis tilkynntu 6. ágúst að ákveðið hafi verið að kalla til óháða aðila til að rannsaka tilfellin. Vísir/vilhelm Ekki er hægt að útiloka með óhyggjandi hætti tengsl nokkurra tilfella blæðinga í kringum tíðahvörf við bólusetningu gegn Covid-19. Hið sama á við um hluta tilfella sem varða óreglulegar og langvarandi blæðingar.
Af þeim voru tvær tilkynningar tengdar blæðingum í kringum tíðahvörf og fimm óreglulegum og/eða langvarandi blæðingum. Þetta er meginniðurstaða nefndar sem rannsakaði tilkynnt tilfelli röskunar á tíðahring í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19. Telur nefndin tengsl á milli bólusetningar og fósturláta hér á landi ólíkleg. Hún skilaði niðurstöðum sínum til Lyfjastofnunar og landlæknisembættisins á dögunum. Markmið rannsóknarinnar var að leita skýringa á orsökum og veita þeim konum sem um ræðir stuðning og viðeigandi ráð. Frá þessu er greint á vef Lyfjastofnunar. Tilkynningar Möguleg orsakatengsl við bólusetningu Ólíkleg orsakatengsl við bólusetningu Heild Alvarlegar 0 5 5 Kringum tíðahvörf 2 9 11 Langvarandi blæðingar 5 22 27 Samtals 7 36 43 Þarfnast frekari athugunar Nefndin áréttar að í öllum tilvikum þyrfti frekari athugun og rannsókn læknis að eiga sér stað til að útiloka þekktar ástæður slíkra einkenna. Þá sé mjög erfitt að meta slík tengsl þar sem ekki liggja fyrir faraldsfræðilegar upplýsingar um sambærileg einkenni í þýðinu. Nefndin telur ólíklegt að orsakasamhengi sé á milli fimm tilkynninga um alvarlegar aukaverkanir og bólusetningar. Þegar nefndin hófst handa við skoðun á tilkynntum tilfellum í byrjun ágúst hafði Lyfjastofnun borist tæplega 400 tilkynningar með einkennum sem vörðuðu raskanir á tíðahring í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19. Í dag hafa Lyfjastofnun borist um 800 tilkynningar. Ekki verið sýnt fram á tengsl bóluefna og blæðingaóreglu Fram kemur í niðurstöðunum að milliblæðingar og blæðingaóregla sé algengt vandamál hjá konum á frjósemisskeiði. Vegna þess sé það fyrirsjáanlegt að þegar svo stór hluti þessa aldurshóps sé bólusettur á nær sama tíma sé óhjákvæmilegt að einhverjar þessara kvenna fái óreglu á blæðingar á sama tímabili og bólusetning á sér stað. Að sögn nefndarinnar hefur Lyfjastofnun Evrópu gefið út að ekki hefur verið hægt að sýna fram á tengsl bóluefna gegn Covid-19 og blæðingaróreglu. Nefndin fjallar um að ekki liggi enn fyrir vísindalegar niðurstöður sem hafa sýnt fram á samhengi milli Covid-19 bólusetningar og óreglulegra blæðinga kvenna. Hins vegar hafi töluvert borið á umræðu um möguleika slíkra tengsla á samfélagsmiðlum og í tilkynningum til Lyfjastofnunar. „Þó virðist því miður vera lítið um rannsóknir þar sem bólusetningar eða aðrir mögulegir áhættuþættir hafa verið ítarlega skoðaðir með blæðingaóreglu kvenna sem meginviðfangsefni.“ Álag tengt heimsfaraldrinum mögulega haft áhrif Vísað er í niðurstöður einnar rannsóknar frá Kína á tæplega 200 konum um möguleg áhrif Covid-19 sýkingar. Niðurstöðurnar eru á þann veg að um fjórðungur þeirra varð fyrir breytingum á blæðingum í allt að tvo mánuði eftir að sýkingu lauk. Nær allar höfðu náð bata að þeim tíma liðnum. Jafnframt segir í skýrslu nefndarinnar að nýlegar niðurstöður rannsóknar gefi vísbendingu um möguleg tengsl séu á milli álags tengdum heimsfaraldri Covid-19 og blæðingaóreglu kvenna. Er þetta í samræmi við eldri rannsóknir sem sýna sterkari fylgni við kvíða, aukið álag og þunglyndi meðal kvenna á tímum heimsfaraldra, sem eru allt áhættuþættir fyrir blæðingaóreglu meðal kvenna. „Það er mat nefndarinnar að í flestum tilvikum sem varða tilkynningar umblæðingaóreglu til Lyfjastofnunar, sé ekki hægt að sýna fram á að tengsl við bólusetningar. Í mörgum tilvikum voru aðrar þekktar orsakir fyrir blæðingaóreglu til staðar sem líklegri skýring. Einnig er bent á að tilvikin séu fá svo að ekki sé hægt að útiloka tengsl með vissu og bíða verði upplýsinga úr stærri þýðum.“ Ráðleggur nefndin að að konur leiti læknis ef þær upplifi blæðingaóreglu, miklar blæðingar eða önnur ný einkenni tengd tíðahring sem ganga ekki yfir á nokkrum dögum. Sömuleiðis sé mikilvægt að konur sem fá blæðingu á breytingaskeiði leiti til læknis. Nánar er fjallað um niðurstöður rannsóknarinnar á vef Lyfjastofnunar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Kvenheilsa Bólusetningar Heilbrigðismál Tengdar fréttir Ætla að rannsaka áhrif Covid-19 bóluefna á tíðahring kvenna Til stendur að hefja rannsókn á áhrifum bóluefna gegn Covid-19 á tíðahring kvenna hér á landi. Rannsóknin verður unnin undir forystu Lyfjastofnunar og í samvinnu við landlækni og sóttvarnalækni. 30. júlí 2021 12:27 Hátt í 800 konur hafa fundið fyrir breytingum á tíðarhring eftir bólusetningu Rebekka Ósk Sváfnisdóttir stofnaði nýlega hóp á Facebook fyrir konur sem hafa fundið fyrir aukaverkunum tengdum tíðarhringnum í kjölfar bólusetningar við Covid-19. Rebekka hafði sjálf fundið fyrir miklum einkennum en hún var á blæðingum í 53 sólarhringa í kjölfar bólusetningarinnar. 29. júlí 2021 17:36 Mest lesið Mjög gjarnan kölluð nasisti og fasisti Innlent Deilt um „Pope Francis“ forsetans: „Óboðlegt og óskiljanlegt“ eða hneykslunargirni heilagra? Innlent Barn á óskoðuðum bíl á 151 kílómetra hraða Innlent Vildi „tagga“ Frans páfa en niðurstaðan reyndist slysaleg Innlent Drottningin lögð inn vegna veikinda Erlent „Til hamingju hálfvitar“ Innlent Gallar í nýbyggingum: Eigendur nýrra íbúða eigi ríkari rétt Innlent Þrjátíu prestar krefjast dvalarleyfis fyrir Oscar Innlent „Skrítið og óeðlilegt“ að Ísrael fái að vera með í Eurovision Innlent Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Erlent Fleiri fréttir Vildi „tagga“ Frans páfa en niðurstaðan reyndist slysaleg „Hér hefur verið unninn skaði sem þarf að stöðva“ Landris heldur áfram en dregið hefur úr hraðanum „Skrítið og óeðlilegt“ að Ísrael fái að vera með í Eurovision Barn á óskoðuðum bíl á 151 kílómetra hraða Gallar í nýbyggingum: Eigendur nýrra íbúða eigi ríkari rétt Ráðherra ræðir þátttöku Ísraels í Eurovision Vill að allir flokkar hafi hlutverk í borgarstjórn Mótmæltu brottvísun Oscars við dómsmálaráðuneytið Reyndu að fá Ingu á sitt band með fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum Mjög gjarnan kölluð nasisti og fasisti Stöðvaður á 116 kílómetra hraða Þrjátíu prestar krefjast dvalarleyfis fyrir Oscar Deilt um „Pope Francis“ forsetans: „Óboðlegt og óskiljanlegt“ eða hneykslunargirni heilagra? Hvalreki í Njarðvík við Borgarfjörð eystri Forsætisráðherra vill sjá nýtt fangelsi á Stóra Hrauni sem fyrst „Til hamingju hálfvitar“ Svikahrappur beið eftir flugferð framkvæmdastjórans Frans páfi, forsætisráðherra um fangelsismál og villtur páfagaukur Dæmi um að fyrirtæki tapi tugum milljóna í „forstjórasvindli“ Halla Tómasdóttir minnist „Pope Francis“ Lögmaður þurfi ekki að hafa áhyggjur af þekkingu ráðherra Andlát páfa og svikahrappar sem herja á fólk og fyrirtæki „Stjórnvöldum er að takast að loka Kvikmyndaskóla Íslands“ Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Hátt í þrettán stiga hiti á sumardaginn fyrsta Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Sjá meira
Ætla að rannsaka áhrif Covid-19 bóluefna á tíðahring kvenna Til stendur að hefja rannsókn á áhrifum bóluefna gegn Covid-19 á tíðahring kvenna hér á landi. Rannsóknin verður unnin undir forystu Lyfjastofnunar og í samvinnu við landlækni og sóttvarnalækni. 30. júlí 2021 12:27
Hátt í 800 konur hafa fundið fyrir breytingum á tíðarhring eftir bólusetningu Rebekka Ósk Sváfnisdóttir stofnaði nýlega hóp á Facebook fyrir konur sem hafa fundið fyrir aukaverkunum tengdum tíðarhringnum í kjölfar bólusetningar við Covid-19. Rebekka hafði sjálf fundið fyrir miklum einkennum en hún var á blæðingum í 53 sólarhringa í kjölfar bólusetningarinnar. 29. júlí 2021 17:36
Deilt um „Pope Francis“ forsetans: „Óboðlegt og óskiljanlegt“ eða hneykslunargirni heilagra? Innlent
Deilt um „Pope Francis“ forsetans: „Óboðlegt og óskiljanlegt“ eða hneykslunargirni heilagra? Innlent