Í síðasta mánuði fóru daglega tæplega 178 þúsund ökutæki yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu og hafa þau ekki verið fleiri frá því mælingar hófust.
Bíllausi dagurinn sem var haldinn 22. september var með svipaða umferð og meðalumferð á öðrum miðvikudögum í septembermánuði.
Útlit fyrir níu prósenta aukningu milli ára
Nú hefur umferðin á höfuðborgarsvæðinu aukist um 6,3% frá áramótum það sem af er árs miðað við sama tímabil á síðasta ári. Leita þarf aftur til ársins 2017 til að finna meiri aukningu miðað við árstíma. Öll mælisnið sýndu aukningu en mest jókst umferð um snið ofan Ártúnsbrekku eða um rúmlega 7%.
Ef umferð þróast það sem eftir er árs líkt og í hefðbundnu ári er von á um 9% aukningu á umferðinni nú í ár miðað við seinasta ár. Að sögn Vegagerðarinnar er um að ræða verulega mikla aukningu en þó hún kæmi til yrði umferðin samt rúmlega 2% minni en hún var árið 2019.
Umferð jókst á öllum vikudögum í september og mest á laugardögum eða um 10,0% en minnst á þriðjudögum eða um 2,4%. Mest var ekið á föstudögum minnst á sunnudögum.