Íslendingar hafa lifað við samkomutakmarkanir í að verða þrjá mánuði en nú er líklega að verða breyting þar á. Sóttvarnalæknir hefur sent ríkisstjórninni tillögur að næstu skrefum. Heilbrigðisráðherra hefur ráðist í margþættar aðgerðir til að búa spítalann undir álag vegna faraldursins.
Þar eru ríkisstjórninni gefnir þrír valkostir, sem eru reyndar vel að merkja einu þrír valkostirnir í stöðunni á meðan ekki er til umræðu að herða tökin; að halda í óbreytt ástand, að ráðast í tilslakanir í skrefum, eða að aflétta einfaldlega öllu.
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar kveðst ekki átta sig alveg á því hvers vegna Þórólfur gefur ríkisstjórninni eins frjálsar hendur í þetta skiptið. „En hann hefur sjálfsagt sínar ástæður,“ segir Kári. „Mér hefði fundist að við hefðum átt að aflétta öllum takmörkunum innanlands fyrir löngu síðan.“
Þórólfur hefur tekið skýrt fram að hann miði sínar tillögur við getu Landspítalans til að takast á við faraldur hverju sinni. Í minnisblaði frá Landspítala kemur fram að gert sé ráð fyrir fleiri innlögnum ef veikum fjölgar vegna Covid-19 - þar hefur verið reiknað út til hlítar hvað þarf til að færa spítalann aftur á hættustig. Það eru mun fleiri veikir en nú eru.
„Við verðum ósköp einfaldlega að taka þá áhættu að lifa frjálsu lífi í þessu landi en ég held að líkurnar á því að spítalinn sökkvi núna séu orðnar tiltölulega litlar,“ segir Kári.
Heilbrigðisráðherra gerði í dag grein fyrir margþættum aðgerðum sem ráðist hefur verið í til að létta álag á Landspítalanum með ýmsu móti. Koma á upp hágæslurýmum, liðka fyrir útskriftum og annað í þeim dúr.
Aðeins ein sekt á þremur mánuðum
Enda þótt ýmsar reglur hafi verið við lýði síðustu mánuði, eins og grímuskylda þar sem eins metra fjarlægð verður ekki tryggð, er ljóst að þeim er víðast hvar ekki fylgt - og heldur ekki ævinlega fylgt eftir.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur þannig aðeins lokið einu máli með sekt á síðustu þremur mánuðum vegna brota á sóttvarnareglum, af 17 skráðum brotum.
Finnst þér fólk vera að gæta sóttvarna í samfélaginu?

„Það hefur verulega slakað á því. Menn eru hættir að nota grímur og hættir að fara eftir þessum reglum sem eru í gildi. Það er ekki í fyrsta skipti sem það er, þannig hefur það verið,“ segir Þórólfur.
„Mér finnst eins og menn líti svo á að þetta sé bara búið og mér finnst að menn tali bara eins og þetta sé alveg búið. Mér finnst það nú svolítið óábyrgt, að tala þannig,“ heldur Þórólfur áfram.
Á þeim nótum lyftir Kári upp sprittbrúsa og segir: „Ég er meira að segja reiðubúinn að gerast svo glannalegur að halda því fram að eina gagnið af svona sprittbrúsa í dag sé að drekka innihaldið.“ Að gefnu tilefni skal það tekið skýrt fram að það segir vísindamaðurinn í algjöru gamni.