Undirtegundir
Hyundai Tucson var mest nýskráða undirtegundin með 72 eintök. Þar af eru 68 tengiltvinn bílar. Mazda MX-30 sú næst mest nýskráða með 49 eintök. Mercedes-Benz GLE er í þriðja sæti með 34 nýskráð eintök.
Athygli vekur að Toyota sem er í öðru sæti í heildina sést ekki á lista yfir undirtegundir fyrr en í fjórða sæti, þar sem finna má Rav4 með 31 eintak.

Orkugjafar
Minnsti mögulegi munur er á bensín raftengilbílum annars vegar, sem er algengasti orkugjafi nýskráðra bíla í október með 277 eintök nýskráð og rafbíla hins vegar sem var næst algengasti orkugjafinn í október, 276 eintök.
Þróun
Samtals voru nýskráð 1397 ný ökutæki í september á Íslandi. Það fækkar því um rúman fjórðung þar sem nýskráð ökutæki í október voru 1020. Það er þó smávægileg aukning á milli ára. Í október í fyrra voru 962 ökutæki nýskráð þannig að nýskráningum fjölgar um 6%.