Stundum hefur verið sagt að við Íslendingar séum ekkert sérstaklega góð í því að hrósa, né að taka hrósi, en eflaust er allur gangur á því.
Flestir eru þó sammála um það að einlæg hrós séu af hinu góða og hafi jákvæð áhrif bæði á þann sem hrósar og þann sem fær hrósið.
Það getur svo verið mismunandi hvað fólki finnst vera við hæfi að hrósa fyrir og hvað ekki.
Í síðustu viku spurðu Makamál lesendur Vísis hvort að þeim fyndist það í lagi að hrósa fyrir ilm eða lykt og var könnunin kynjaskipt að þessu sinni.
Rúmlega þrjú þúsund og sex hundruð manns tóku þátt í könnuninni og eins og sjá má á niðurstöðunum* hér fyrir neðan reyndist ekki vera mikill munur á svörum karla og kvenna.
Langfæstir sögðu það ekki vera í lagi að hrósa fyrir ilm eða um 3% karla og 2% kvenna.
Flestir virtust því sammála um það að það væri í lagi að hrósa manneskjum fyrir ilm eða lykt en þó voru skiptar skoðanir á því hver má hrósa hverjum.
Niðurstöður*
KARLAR:
Já, alltaf - 69%
Já, ef það er náinn vinur eða maki - 28%
Nei, aldrei - 3%
KONUR:
Já, alltaf - 75%
Já, ef það er náinn vinur eða maki - 23%
Nei, aldrei 2%
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Allar kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.