Senda hádegismat á vinnustaði Matarkompaní 9. nóvember 2021 08:51 Matarkompaní kemur til móts við kröfuharða.
Matarkompaníið býður upp á bragðgóða fyrirtækjaþjónustu í hádeginu. Hægt er að panta mat fyrir starfsmannahópa frá fimmtán manns og upp úr og fá sendan á staðinn. Guðmundur Óli Sigurjónsson, matreiðslumaður og eigandi Matarkompanís leggur áherslu á ferskt hráefni og matreiðslu frá grunni. „Réttirnir okkar eru mitt á milli þess að vera klassískur heimilismatur sem fólk þekkir í mötuneytum og réttir sem fólk fær sér á veitingastað þegar það fer út að borða. Við notum eingöngu ferskt grænmeti í matargerðina, aldrei frosið og fiskurinn kemur til okkar ferskur að morgni dags. Við leggjum mikinn metnað í matreiðsluna og komum til móts við kröfuharða. Fjölbreytnin er mikil, við erum ekki bara með brúna sósu með öllu heldur búum til ýmsar léttar jógúrtsósur til dæmis." Hjá okkur er hægt að velja milli fiskrétta, kjötrétta og veganrétta og fá súpu dagsins og brauð. Þá er einnig hægt að kaupa brauð og velja um fjórar tegundir af salati.“ Allur gangur er á því hversu oft í viku fyrirtæki nýta sér þjónustuna aðeins þarf að passa að panta með tveggja sólarhrings fyrirvara. „Það er lítið mál að panta á heimasíðunni okkar,“ segir Guðmundur. „Bara ýta á „Panta mat“ neðst á forsíðunni, fylla út pöntun og senda. Fólk fær staðfestingu senda til baka. Maturinn kemur síðan tilbúinn á staðinn, ýmist í einstaklingsbökkum eða í fjölnota stálbökkum sem fara yfir hitaborð eftir því hvernig viðskiptavinurinn vill hafa það. Á mörgum stærri vinnustöðum eru hitaborð til staðar en minni vinnustaðir vilja gjarnan einstaklingsbakka og við notum umhverfisvæna bakka úr vaxhúðuðum pappír. Við sendum bakkana í hitakassa á staðinn og sækjum svo hitakassann eftir að matartíma lýkur.“ Matarkompaníið þjónustar stórhöfuðborgarsvæðið og hefur byggt upp fyrirtækjaþjónustuna auk veisluþjónustu. Nánari upplýsingar er að finna á matarkompani.is
Matur Jólagjafir fyrirtækja Mest lesið Stúdentar taka til: Z-kynslóðin er að velja sér fyrirtæki framtíðarinnar Atvinnulíf Mikil óvissa í alþjóðamálum gæti reynt á þjóðarbúið Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Viðskipti innlent Segir útlitið svart fyrir sjávarútveginn og breytingarnar illa unnar Viðskipti innlent Salóme tekur við af stofnanda Ísorku Viðskipti innlent Kemur nýr inn í fjármálastöðugleikanefnd Viðskipti innlent Helgi ráðinn sölustjóri Viðskipti innlent Lýsa yfir verulegum áhyggjum af tvöföldun veiðigjalda Viðskipti innlent Aflinn verði verkaður annars staðar eftir breytingar stjórnarinnar Viðskipti innlent Macland gjaldþrota: „Bruninn fór með þetta“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Drægnikvíðastillandi dreki sem byggir á fornri frægð Bein útsending: Stafrænar lausnir í heilbrigðisþjónustu Greiðsluáskorun Lukkuhjól hlaðið vinningum á opnun Raflands Vetrarferð á verðlaunuðum rafbíl Iðnaðarhurðir sem henta íslenskum aðstæðum Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Slippfélagið eflir þjónustu með gervigreind Sjá meira