„Ég er meira en sáttur með þetta. Ég ætlaði ekki tómhentur heim. Auðvitað hefði gaman að fá gull eða brons en ég fékk að stíga upp á verðlaunapall og fá þessa geggjuðu medalíu,“ sagði Markús í samtali við Vísi.
Íslenska hækkaði heildareinkunn sína verulega frá undankeppni. „Við stilltum hausinn og vorum algjörlega í „sóninu“ í dag. Við negldum dýnuna þar sem við vorum aðeins slappari síðast. Trampólínið var samt betra í undanúrslitunum. En annars var þetta mjög góður árangur hjá okkar liði. Ég er mjög sáttur.“
Íslenska liðið var ekki langt frá því sænska sem endaði í 2. sæti, aðeins 0.600. Markús neitar því ekki að hann hefði viljað fá silfrið.

„Við vorum mjög nálægt. Við fengum aðeins minna á trampólíni en svona er þetta sport,“ sagði Markús.
Hann var í miklum fíling í undankeppninni eins og áður hefur verið fjallað um. Hann naut þess ekki síður að keppa í kvöld.
„Núna fékk ég að vera í sex umferðum sem er risastórt. Ég lenti ekki alveg öllu og get gert miklu betur en svona er þetta. Það var meiri stemmning í stúkunni og þetta var geggjað,“ sagði Markús.
Áður en viðtalið hófst góluðu liðsmenn annarra liða „Krúsi, Krúsi“ við góðar undirtektir hans. Markús virðist algjörlega hafa slegið í gegn á EM með mikilli keppnisgleði og einlægri ástríðu.
„Ég hef farið á síðustu þrjú stórmót bara sem áhorfandi og búinn að kynnast fullt af fólki frá öllum þessum löndum og halda sambandi við það. Og þau þekkja mig sem Krúsa,“ sagði Markús, eða Krúsi.

Aðeins tæpt ár er í næsta Evrópumót sem fer fram í Lúxemborg. Og þar ætlar Krúsi að vera.
„Ég geri mitt besta til þess. Ég held ég eigi alveg góða möguleika á að vera annað hvort í blandaða liðið eða karlaliðið og ætla að láta ljós mitt skína þar,“ sagði Krúsi að lokum.