Þó að Rangæingurinn Karitas Tómasdóttir hafi spilað hanskalaus í stuttermabol í snjóbylnum í Kópavogi þá virtist mörgum kalt þegar leikur Breiðabliks og Real Madrid fór fram í Meistaradeildinni í fótbolta.
Það er sjaldgæft að keppnisleikir í fótbolta fari fram á Íslandi í desember en vegna nýs fyrirkomulags í Meistaradeild kvenna, og sterkrar stöðu úrvalsdeildar kvenna í evrópskum samanburði, má búast við fleiri desemberleikjum á næstu árum.
Í fyrrakvöld fór að kyngja niður snjó áður en leikur Breiðabliks og Real hófst klukkan 20. Vallarstarfsmenn gerðu sitt til að moka snjó af vellinum fyrir leik og í hálfleik, en snjókoman hafði sín áhrif á leikinn og spila þurfti með appelsínugulan bolta.
Asllani skoraði samt sem áður tvö mörk í 3-0 sigri Real. Á Instagram eftir leik skrifaði hún:
„Stolt af frammistöðu liðsins í kvöld í klikkuðustu og köldustu aðstæðum sem ég hef nokkru sinni spilað í. 3-0 og komin áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Vel gert lið.“
Þess má geta að Asllani er 32 ára og hefur spilað með liðum í Svíþjóð, Bandaríkjunum, Frakklandi, Englandi og nú Spáni, auk þess að leika vel á annað hundrað landsleikja fyrir Svíþjóð.
Liðsfélagi Asllani, Esther González, fagnaði 28 ára afmæli í gær og á eflaust eftir að muna eftir þessum afmælisdegi. Eins og sjá má á myndinni hér efst reyndu vinkonur hennar að hlýja henni eftir leik með notkun hárblásara inni í búningsklefa, enda sú spænska enn óvanari kuldanum en Asllani.