Frábær viðsnúningu Japana | Öruggt hjá Ungverjum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 10. desember 2021 18:34 Japan vann virkilega sterkan endurkomusigur í kvöld. Dean Mouhtaropoulos/Getty Images Nú rétt í þessu lauk tveimur leikjum í milliriplum Heimsmeistaramóts kvenna í handbolta. Japan vann virkilega góðan sigur gegn Austurríki eftir að hafa verið fimm mörkum undir snemma í seinni hálfleik og Ungverjar unnu sannfærandi átta marka sigur gegn Kongó.
Austurrísku stelpurnar byrjuðu af miklum krafti gegn þeim japönsku og skoruðu fyrstu fimm mörk leiksins. Eftir það jafnaðist leikurinn út, en þær Austurrísku héldu fjögurra til fimm marka forskoti út hálfleikinn. Þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 19-15, Austurríki í vil. Þær Austurrísku komust aftur í fimm marka forskot snemma í seinni hálfleik í stöðunni 21-16, en þá tók við góður gafli japanska liðsins þar sem þær minnkuðu muninn niður í eitt mark. Japanska liðið var þó enn að elta, en þær náðu loksins að komast yfir þegar um fimm mínútur voru til leiksloka í stöðunni 28-27. Japanska liðið hélt út og vann virkilega sterkan tveggja marka sigur, 32-30. Japan er nú í þriðja sæti riðilsins fjögur stig, en Austurríki situr hins vegar sem fastast á botninum án stiga. Leikur Ungverja og Kongó bauð ekki upp á jafn mikla spennu, en ungversku stelpurnar tóku afgerandi forystu snemma leiks. Þær fóru með átta marka forskot inn í hálfleikinn, og héldu því út leikinn. Lokatölur 30-22, en Ungverjaland situr nú í fjórða sæti riðilsins með fjögur stig eftir jafn marga leiki. Kongó er enn án stiga á botninum.
HM 2021 í handbolta Mest lesið Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Körfubolti Liverpool mætir PSG og Madrídarliðin eigast við Fótbolti Dagmar ofuramma og heimsmethafi: „Maður springur bara út“ Sport Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Enski boltinn Zlatan segir skammarverðlaunin verðskulduð Fótbolti Sjáðu markið: Tók Orra enga stund að stimpla sig inn Fótbolti Bætti skólamet pabba síns Körfubolti „Vafasamir dómar sem féllu gegn okkur í þessu einvígi“ Fótbolti Hrósa Ísaki fyrir þroska, hreinskilni og auðvitað að vera góður í fótbolta Sport „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Handbolti Fleiri fréttir Tveir nýliðar úr Haukum í landsliðinu „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Stór helgi að Hlíðarenda: Stefnan sett á undanúrslit Gríðarleg spenna á toppnum Orri Freyr magnaður þegar það leið yfir annan dómarann Kennir sjálfum sér um ófarir Gísla Haukar halda sér í toppbaráttunni Janus Daði öflugur í súru tapi Mögnuð Elín Klara þegar Haukar unnu Stjörnuna Elvar Örn öflugur og Melsungen áfram á toppnum Selfoss sá ekki til sólar á Hlíðarenda Íslendingalið Benfica og Gummersbach halda í vonina Þriðja landsliðskona liðsins orðin ófrísk Ýmir sneri aftur í góðum sigri Reynsluboltinn fann sér nýtt lið Gísli stórkostlegur í toppslagnum ÍBV vann Gróttu sem hefur beðið í 136 daga Óðinn Þór markahæstur að venju KA/Þór beint aftur upp í deild þeirra bestu Heimsmeistararnir gengu frá lærisveinum Guðjóns Vals „Vorum nokkurn veginn búnir að kortleggja þetta“ Uppgjörið: Haukar - Jeruzalem Ormoz 31-23 | Öruggt hjá Haukum gegn slöku slóvensku liði Valsmenn skoruðu 48 í Breiðholti Haukar töpuðu stórt í Tékklandi Framkonur stálheppnar að missa ekki sigurinn ÍR skellti í lás og fór upp fyrir Stjörnuna Sviptur HM vegna mistaka í lyfjaprófi Sigursteinn setti fjórtán ára son sinn inn á gólfið í Olís deildinni Fyrsti sigur FH-inga á árinu kom þeim í toppsætið Danir fela HM-styttuna Sjá meira