„Hæ hæ ef þú þekkir einhvern sem er í nefndinni sem úthlutar heiðurslaunum listamanna þá langar mig að biðja þig að sannfæra viðkomandi um að Maggi Eiríks verði valinn núna, hann er ekki bara besti laga- og textahöfundur Íslands heldur er hann líka geggjað fyndinn og töff gaur,“ skrifaði Mugison á Facebook í dag.
Úthlutun heiðurslauna listamanna hefur verið talsvert til umræðu í dag eftir að Vísir greindi frá að skiptar skoðanir séu innan allsherjar- og menntamálanefndar hvað skuli gera varðandi Megas, sem er á lista fir þá sem þiggja heiðurslaun. Ástæða þessara skiptu skoðana er viðtal sem birtist í Stundinni á dögunum við konu sem sakar Megas um kynferðisofbeldi.
En Mugison virðist fastur á því að Maggi Eiríks eigi heiðurslaunin sannarlega skilið og nefnir að Maggi sé enn á fullu að semja lög og texta, orðinn 76 ára gamall.
„Hann á perlur eins og Einhversstaðar, einhverntíman aftur, Braggablús, Reyndu aftur, Kóngur einn dag, Samferða, Ómissandi fólk, Ég er á leiðinni, Ó þú, Gamli góði vinur, Einbúinn, Óbyggðirnar kalla... og svo mætti í alvörunni lengi telja,“ skrifar Mugison.
Hann hvetur landsmenn til að senda stjórnmálamönnum póst og skora á þá að Maggi fái heiðurslaunin.
„Ég veit ekki hvernig þetta ferli fer fram en mig langar að biðja þig/þjóðina að senda póst á þann stjórnmálamann sem þú fílar mest og saman getum beitt nefndina þrýstingi og heiðrað hann Magga og þannig þakkað fyrir perlurnar sem hann hefur gefið okkur.“
Sjálfur sé Mugison búinn að senda póst á menntamálaráðuneytið og forsætisráðuneytið. 23 eru nú á heiðurslaunum en meðal þess sem allsherjar- og menntamálanefnd lítur á sem sitt verkefni er að finna til tvo sem setja má á listann en heiðurslaun listamanna eru veitt allt að 25 listamönnum árlega.
Þeir sem voru á lista yfir heiðurslistamenn þjóðarinnar voru eftirfarandi en Jón Sigurbjörnsson og Vilborg Dagbjartsdóttir féllu frá á árinu.
1. | Bubbi Morthens |
2. | Erró |
3. | Friðrik Þór Friðriksson |
4. | Guðbergur Bergsson |
5. | Guðrún Ásmundsdóttir |
6. | Guðrún Helgadóttir |
7. | Gunnar Þórðarson |
8. | Hannes Pétursson |
9. | Hreinn Friðfinnsson |
10. | Jón Ásgeirsson |
11. | Jón Nordal |
12. | Jón Sigurbjörnsson |
13. | Jónas Ingimundarson |
14. | Kristbjörg Kjeld |
15. | Kristín Jóhannesdóttir |
16. | Magnús Pálsson |
17. | Matthías Johannessen |
18. | Megas |
19. | Steina Vasulka |
20. | Vigdís Grímsdóttir |
21. | Vilborg Dagbjartsdóttir |
22. | Þorbjörg Höskuldsdóttir |
23. | Þorgerður Ingólfsdóttir |
24. | Þráinn Bertelsson |
25. | Þuríður Pálsdóttir |