Innviðarumvarp Bidens er ætlað að yfirhala fjölmörg svið hins opinbera vestanhafs og er lykilfrumvarp forsetans. Öldungadeildarþingmaðurinn Joe Manchin, frá Vestur-Virginíu, tilkynnti í gær að hann ætlaði sér ekki að styðja við frumvarpið né greiða því atkvæði sitt.
Sjá einnig: Áætlun Biden felur í sér stærstu fjárfestingu í loftslagsaðgerðum í sögu Bandaríkjanna
Öldungadeildin deilist jafnt milli Demókrata- og Repúblikanaflokksins og er hvor flokkur með fimmtíu öldungadeildarþingmenn. Varaforseti Bandaríkjanna, sem er nú Demókrati, hefur svo úrslitaatkvæðið.
Þrátt fyrir að litlar sem engar líkur séu á því að frumvarpið verði samþykkt ætlar Schumer að láta greiða atkvæði um það. Þau myndu greiða atkvæði um aðrar útgáfur frumvarpsins þar til þeim yrði ágengt, samkvæmt frétt Washington Post.
Í yfirlýsingu sinni í gær sagðist Mancin ekki vilja styðja frumvarpið vegna aukinnar verðbólgu, hækkandi skulda og útbreiðslu ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar.
Manchin, sem er íhaldssamari en gengur og gerist í Demókrataflokknum, fór svo í viðtal í vinsælum þætti í Vestur-Virginíu í morgun þar sem hann sagði mögulegt að brjóta frumvarpið niður í mismunandi hluta til að koma einhverju af því í gegn. Fyrst þyrfti það þó allt að fara í gegnum þingnefndir.
Annars kvartaði hann yfir þeim þrýstingi sem hann varð fyrir úr Hvíta húsinu.
Gagnrýndur af Hvíta húsinu
Í kjölfar yfirlýsingar Manchnins í gærmorgun, sem hann varpaði fyrst fram á Fox News, sendi talskona Bidens út yfirlýsingu þar sem þingmaðurinn var harðlega gagnrýndur fyrir að snúast hugur varðandi frumvarpið og fyrir að fara gegn orða sinna til Bidens og annarra Demókrata.
Samkvæmt frétt Politico taldi Biden að viðræður milli hans og Manchins í síðustu viku hefðu dugað til og að hann gæti fengið þingmanninn á sitt band snemma á næsta ári.
Aðrir Demókratar hafa einnig gagnrýnt Manchin. Repúblikanar hafa hins vegar hrósað honum í hástert. Þeir hafa lengi reynt að fá Manchin til að ganga til liðs við Repúblikanaflokkinn.