Þriðji Þórsarinn sem þarf að fara heim vegna meiðsla Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. janúar 2022 18:01 Jérémy Landenbergue fær aðhlynningu eftir að hafa meiðst gegn KR. vísir/bára Meiðslaófarir karlaliðs Þórs Ak. í körfubolta virðast engan enda ætla að taka. Svisslendingurinn Jérémy Landenbergue er farinn frá liðinu eftir að hafa slitið krossband í hné í leik gegn KR 16. desember. Þegar rúmar sex mínútur voru eftir af 3. leikhluta stal Landenbergue boltanum og reyndi skot sem geigaði. Hann lenti illa og kom ekkert meira við sögu í leiknum sem KR vann, 83-74. Þetta var síðasti leikur Landenbergues fyrir Þór. Klippa: Jérémy Landenbergue meiðist „Hér er á ferðinni góður drengur sem mikil eftirsjá er af. Leiðinlegt að hann náði aldrei að sýna liðinu né stuðningsmönnum hvað býr í honum. Við þökkum honum kærlega fyrir allt og óskum honum skjóts og góðs bata og velfarnaðar,“ sagði Bjarki Ármann Oddsson, þjálfari Þórs, á heimasíðu félagsins. Mikil meiðsli hafa herjað á Þórsara í vetur. Írinn Jordan Blount og Bandaríkjamaðurinn Jonathan Lawton þurftu báðir að fara heim vegna meiðsla. Þá lenti annar Svisslendingur, Eric Founge, í alvarlegu bílslysi en mætti samt á æfingu daginn eftir. Í fjórum leikjum í Subway-deildinni í vetur er Landenbergue með 10,0 stig og 3,3 fráköst að meðaltali. Þór er án stiga á botni Subway-deildarinnar. Næstu tveir leikir liðsins eru á heimavelli, gegn Grindavík 6. janúar og Tindastóli fjórum dögum síðar.
Þegar rúmar sex mínútur voru eftir af 3. leikhluta stal Landenbergue boltanum og reyndi skot sem geigaði. Hann lenti illa og kom ekkert meira við sögu í leiknum sem KR vann, 83-74. Þetta var síðasti leikur Landenbergues fyrir Þór. Klippa: Jérémy Landenbergue meiðist „Hér er á ferðinni góður drengur sem mikil eftirsjá er af. Leiðinlegt að hann náði aldrei að sýna liðinu né stuðningsmönnum hvað býr í honum. Við þökkum honum kærlega fyrir allt og óskum honum skjóts og góðs bata og velfarnaðar,“ sagði Bjarki Ármann Oddsson, þjálfari Þórs, á heimasíðu félagsins. Mikil meiðsli hafa herjað á Þórsara í vetur. Írinn Jordan Blount og Bandaríkjamaðurinn Jonathan Lawton þurftu báðir að fara heim vegna meiðsla. Þá lenti annar Svisslendingur, Eric Founge, í alvarlegu bílslysi en mætti samt á æfingu daginn eftir. Í fjórum leikjum í Subway-deildinni í vetur er Landenbergue með 10,0 stig og 3,3 fráköst að meðaltali. Þór er án stiga á botni Subway-deildarinnar. Næstu tveir leikir liðsins eru á heimavelli, gegn Grindavík 6. janúar og Tindastóli fjórum dögum síðar. Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Subway-deild karla Þór Akureyri Mest lesið Harmleikur á Bretlandi: „Hann var frábær faðir“ Sport Vinirnir vara Tiger við en honum er skítsama Golf Mætti á blaðamannafund með börn látins bróður síns Körfubolti Bjuggust alls ekki við þessu af Bergrós: „Hún var alveg ótrúleg“ Sport Hetja Breiðabliks lá á gjörgæslu í eina viku: „Þakklátur fyrir heilsuna“ Íslenski boltinn Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Handbolti Sjáðu mörkin og Hödda Magg missa sig yfir besta einvígi ársins Fótbolti Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum Handbolti „Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ Handbolti Curry niðurbrotinn í sigri og mögnuð endurkoma Pacers Körfubolti Fleiri fréttir Þjálfari Úlfanna skammaði stórstjörnu liðsins: „Þú verður að gefa tóninn“ Curry niðurbrotinn í sigri og mögnuð endurkoma Pacers Mætti á blaðamannafund með börn látins bróður síns Öll sextíu sigra liðin 0-1 undir í sínum einvígum Goðsagnirnar Duncan og Ginobili pössuðu upp á Popovich Ármenningar einum sigri frá sæti í Bónus deildinni Önnur sigurkarfa Gordons í úrslitakeppninni „Ofboðslega meðvitaður um að ég eigi ekki marga svona leiki eftir“ „Er þetta ljótasti maður sem þú hefur kysst?“ Ólafur baðst afsökunar eftir leik: „Ég er bara rosalega viðkvæmur eins og er“ „Annar oddaleikurinn þar sem við lendum í algjörri þvælu“ „Ég fékk að setja þetta ofan í og guðirnir voru með mér í dag“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 74-70 | Stjarnan í úrslit eftir hádramatík Lögmálið: Vil fá Óskar Ófeig hérna í staðinn Allt undir í oddaleik: Sjaldan mætt liði á Íslandi með jafn mikil einstaklingsgæði „Þær eru stærri en við erum drullusterkar“ Sendu Houston enn á ný í háttinn „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Diamond: Þurfum að ná í stopp allan leikinn Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 72-90 | Haukar einu skrefi frá Íslandsmeistaratitlinum Styrmir gulltryggði sigur Belfius Mons og var stigahæstur á vellinum „Verið að kveðja góðan mann með mjög glæstan feril“ Sterk liðsheild Denver á meðan Clippers féll á prófinu „Þetta var minn síðasti körfuboltaleikur“ „Ég kom til Íslands með eitt markmið“ Hamar jafnaði einvígið með stórsigri Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 90-105 | Stólarnir komnir í úrslit „Kóngurinn á Íslandi, DeAndre Kane, bjargaði okkur“ Houston knúði fram oddaleik Segir sína menn þurfa að vera í „meistara ásigkomulagi“ Sjá meira