Eins og kom fram á Lífinu í gær þá gekk þeim misvel að fylgja leiðbeiningum þáttastjórnanda. Að gefnu tilefni þá tökum við fram að það er mikilvægt að fjarlægja bökunarpappírinn af kökubotnunum áður en byrjað er að stafla þeim og skreyta.
Í þessa köku þarf fjögur tuttugu sentímetra bökunarform. Uppskriftina má finna hér fyrir neðan. Athugið að hún er í þremur hlutum, kakan sjálf, kremið og drippið.
Hráefni:
- 300 g smjör, við stofuhita
- 4.5 dl sykur
- 6 egg
- 7.5 dl hveiti
- 6 dl rjómi
- 3 tsk. lyftiduft
- 3 tsk. Vanilludropar
- Matarlitir (fjórir litir) Gulur, rauður, grænn og blár
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Þeytið saman sykur og smjör þar til deigið er létt og fínt.
- Bætið eggjum saman við, einu í einu.
- Sigtið þurrefnin saman og bætið þeim því næst saman við deigið ásamt rjóma og vanillu.
- Þeytið deigið mjög vel í 2 – 3 mínútur og munið að skafa meðfram hliðum svo allt deigið blandist vel saman.
- Skiptið deiginu jafnt niður í formin og bakið við 180°c í 18 – 22 mínútur.
- Kælið kökurnar mjög vel áður en þið setjið á þær krem.

Ljúffengt vanillukrem
- 750 g smjör, við stofuhita
- 750 g flórsykur
- 100 g hvítt súkkulaði
- 1 tsk vanilludropar
- Sykurskraut
Aðferð:
- Þeytið saman smjör og flórsykur.
- Bræðið hvíta súkkulaðið yfir vatnsbaði og hellið út í deigið.
- Þeytið í 2 – 3 mínútur og bætið síðan vanillu saman við, best er að þeyta kremið í 3 mínútur til viðbótar og þá verður kremið silkimjúkt.
- Ef þið ætlið að setja matarlit út í kremið þá setjið þið smá dropa af litnum rétt í lokin áður en þið smyrjið kreminu á milli botnana.
- Skerið miðjuna úr kökunni og fyllið af sykurskrauti.
- Þekið kökuna með kremi og skreytið gjarnan með skrauti, drippi og sykurmassa.

Dripp:
- 100 ml rjómi
- 120 g hvítt súkkulaði
Aðferð:
- Hitið rjóma að suðu, bætið súkkulaði saman við og litið eftir smekk.
- Bíðið þar til verður þykkt og kalt.
- Sprautið í kringum kökuna.
Hér fyrir neðan má sjá þegar kökurnar voru afhjúpaðar í lokin á þættinum.