Íhuga að falla frá skyldubólusetningu heilbrigðisstarfsmanna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 31. janúar 2022 08:51 Samtök ljósmæðra segja reglurnar munu setja fæðingaþjónustuna úr skorðum. Stjórnvöld á Englandi hafa það nú til skoðunar að falla frá skyldubólusetningum framlínustarfsmanna í heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt gildandi reglum ber öllum þeim sem falla í þann hóp að vera fullbólusettir 1. apríl næstkomandi.
Þeir sem hyggjast fara að reglunum þurfa að þiggja fyrri skammtinn fyrir lok þessarar viku en samkvæmt opinberum tölum eru enn um 77 þúsund starfsmenn opinbera heilbrigðiskerfisins enn óbólusettir. Heilbrigðisráðherrann Sajid Javid sagði í síðustu viku að reglurnar um skyldubólusetningar væru til skoðunar. Þær hefðu verið settar þegar delta-afbrigðið var alsráðandi en nú, þegar hið mildara ómíkron hefði tekið yfir, væri rétt að endurskoða þær. Ráðherrann sagði hins vegar á sama tíma að það væri „skylda“ heilbrigðisstarfsmanna að láta bólusetja sig. Ýmis fagfélög hafa kallað eftir frestun, þeirra á meðal samtök ljósmæðra. Forsvarsmenn þeirra segja það myndu hafa hörmulegar afleiðingar fyrir fæðingaþjónustuna í landinu ef staðið verður við tímamörkin, vegna skorts á starfsfólki. Fjöldi heilbrigðisstarfsmanna hefur mótmælt reglunum og sumir sagst íhuga að flytja til annarra landa innan Bretlands þar sem ekki er gerð krafa um bólusetningu, það er að segja Skotlands eða Wales. Áætlað er að um 40 þúsund manns hafi misst störf í félagsþjónustu vegna reglna um skyldubólusetningu. Sérfræðingar segja það hafa haft hrikalegar afleiðingar í för með sér fyrir þjónustuna. Ítarlega frétt um málið má finna hjá BBC.
Bretland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Mest lesið „Faðir minn stakk rýting í bakið á mér“ Innlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Innlent Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður Innlent Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Innlent Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Innlent „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Innlent Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag Innlent Fleiri fréttir Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Leiðtogi skuggalegs költs handtekinn Myndbönd sýna flugvélina lenda harkalega og enda á hvolfi Taldi sig vera að drepa Palestínubúa sem reyndust vera Ísraelar Sjá meira