Vardy, eiginkona enska knattspyrnumannsins Jamie Vardy, höfðaði mál á hendur Coleen Rooney, eiginkonu knattspyrnumannsins þekkta Wayne Rooney, eftir að sú síðarnefnda sakaði Vardy opinberlega um að leka efni af einka-samfélagsmiðli Rooney til The Sun.
Málið vakti mikla athygli þegar það kom upp árið 2019, ekki síst fyrir þær sakir hvernig Rooney afhjúpaði hin meintu svik Vardy, en leikmennirnir tveir voru á sínum tíma félagar í landsliði Englands í knattspyrnu.
Rooney var með persónulegan reikning á Instagram þar sem eingöngu vinir og vandamenn fengu aðgang að. Eftir að hana fór að gruna að einhver þeirra væri að leka myndum og upplýsingum sem fram komu á reikningnum til The Sun greip hún til eigin ráða.
Kallað „Wagatha Christie-málið“ í breskum fjölmiðlum
Smám saman útilokaði hún alla nema Rebekah Vardy frá því að sjá efnið sem birtist á Instagram-reikningi hennar. Hóf einnig að setja inn falskar færslur sem birtust síðar sem fréttaefni á síðum The Sun. Í frægri Twitter-færslu afhjúpaði hún svo Vardy.
Í breskum fjölmiðlum hefur málið fengið „Wagatha Christe-málið“. Um er að ræða samblöndu af skammstöfuninni WAG eða Wifes and Girlfriends, sem eiginkonur og kærustur þekktra knattspyrnumanna eru stundum kallaðar, og nafni breska ráðgátubókahöfundarins Agatha Christie.
This has been a burden in my life for a few years now and finally I have got to the bottom of it...... pic.twitter.com/0YqJAoXuK1
— Coleen Rooney (@ColeenRoo) October 9, 2019
Sjálf hefur Vardy neitað sök og höfðaði hún meiðyrðamál á hendur Rooney vegna málsins. Það er nú til meðferðar hjá dómstólum í Bretlandi.
Ræddu saman um sögur sem birtust síðar í The Sun
Báðir aðilar hafa lagt fram ýmis gögn í málinu. Í frétt The Guardian um nýjustu vendingar í málinu segir að ýmis skilaboð sem gengu á milli Vardy og þáverandi umboðsmanns hennar, Caroline Watt, bendi til þess að þær hafi rætt saman um að leka efni frá Rooney til The Sun.
@ColeenRoo pic.twitter.com/VkhkkIa6nh
— Rebekah Vardy (@RebekahVardy) October 9, 2019
Gögnin bendi einnig til þess að Vardy og Watt hafi ítrekað rætt um að senda sögur til The Sun. Á einum tímapunkti hafi þær rætt um þekktan knattspyrnumann sem eignaðist barn utan hjónabands. Mánuði síðar birtist frétt þess efnis í The Sun.
Sagði Rooney vera „svo mikið fórnarlamb“
Vardy hefur viðurkennt að The Sun hafi greitt henni fjármuni áður en Rooney steig fram með ásökunina umræddu. Lögmenn Rooney vilja fá að vita fyrir hvað var greitt.
Í skilaboðunum viðurkennir Watt að hafa lekið efni til The Sun auk þess sem að þær ræða saman um hvernig Vardy geti vikið sér undan sök með því að bendla aðra við umræddan leka.
„Ég myndi elska það að leka þessum sögum,“ segir Vardy við Watt í einum skilaboðum frá 2019, þegar þær ræddu um bílslys sem Rooney lenti í. Var það áður en fræg Twitter-færsla Rooney afhjúpaði meinta aðild Vardy að málinu.
Samkvæmt gögnunum viðurkenndi Watt, eftir að Rooney birti umrædda færslu, að hafa verið sú sem lak efninu til The Sun.

„Svo mikið fórnarlamb, aumingja Coleen...Og það var ekki einhver sem hún treysti. Það var ég,“ er haft eftir Watt í skjölunum.
Ýmis síma-og tölvugögn hafa horfið á undarlegan hátt
Í skjölunum kemur einnig fram að ekki hafi tekist að afla allra síma- og tölvugagna frá Vardy-hjónunum eða Watt.
Þannig er greint frá því að skömmu eftir að beiðni barst til Watt um að afhenda símagögn vegna málsins hafi hún misst símann ofan í Norðursjó.

Þá segja lögfræðingar Rooney að á svipuðum tíma hafi myndefni í tækjum Vardy úr WhatsApp-samræðum hennar og Watt horfið þegar verið var að afhenda lögmönnum hennar umrætt gögn.
Þá kemur einnig fram að Jamie Vardy hafi sagt að hakkarar hafi brotist inn í síma hans og eytt öllum WhatsApp skilaboðum sem þar var að finna. Þá sé fartölvan sem Vardy hafi notast við á umræddum tíma ónýt, auk þess sem að svo virðist sem að skilaboðum á milli Vardy og blaðamanns The Sun hafi verið eytt.
Búist er við að dæmt verði í málinu síðar á þessu ári.