Í nýjasta þættinum af Eldað af ást gerir Kristín Björk fylltar ítalskar kjötbollur.
Kristín Björk heldur úti skemmtilegri Instagram síðu en þættirnir hennar munu birtast vikulega hér á Vísi. Hægt er að horfa á fyrstu þættina HÉR.
Uppskriftina má finna neðar í fréttinni en aðferðina má sjá í þættinum sem einnig má finna á Stöð 2+ efnisveitunni.
Kjötbollur
- 1 bakki nautahakk
- 250 gr hentur (ég notaði pistasíur og kasjúhnetur)
- 1 egg
- Rauður chilli
- Salt & pipar
- hvítlaukur
- basilika
- Mozarella ostur
Sósan
- Litlir tómatar
- Rauður chilli
- Hvítlaukur
- Basilika
- Ólífu olía
- salt og pipar
- sýróp
Aðferð
- Blanda saman öllu sem fer í bollurnar nema ostinum.
- Móta litlar kúlur, flet þær út í lófanum og set ostinn inn í. Loka þeim utan um ostinn.
- Steiki bollurnar örlítið á pönnu, salta og pipra.
- Innihaldsefnunum í sósuna er öllum blandað saman í eldfast mót.
- Kjötbollurnar eru settar yfir, því næst rifinn Mozarella.
- Bollurnar eru settar inn í ofn á 220 í um það bil 15 mínútur.
- Svo er bara að að sjóða pasta og njóta með brauði og smjöri og parmesan osti.