Myndband: Aptera sólarorkubíllinn stingur Tesla Model 3 af í spyrnu Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 18. febrúar 2022 07:00 Aptera Luna. Aptera Motors er fyrirtæki sem framleiðir þriggja hjóla sólarorkudrifin rafbíl sem er frekar fljótur. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi má sjá Aptera í beta útgáfu sem og alpha útgáfu í spyrnu á móti Telsa Model 3 og Audi R8.
Fyrirtækið Aptera er staðsett í Ssan Diego og þó félagið hafi áform um að flytja í stærri verksmiðju í Carlsbad, Kaliforníu, þá er hægt að panta bíl. Fyrir 100 dollarar eða um 12.500 kr. er hægt að taka frá sæti í röðinni. Aptera kostar frá 3.231.000 kr. (25.900 dollurum). „Ekki blikka - Við erum að skila hröðun sem er knúin af sólinni. 0-60 mph [0-100km/klst] á þríhjóladrifinni útgáfu er 3,5 sekúndur og á framhjóladrifinni útgáfu 5,5 sekúndur,“ segir á YouTube rás Aptera. Aptera segir að bílar sínir hafi um 1600 kílómetra drægni og muni ekki þurfa hleðslu fyrir flestar daglegar athafnir enda búinn sólarrafhlöðum. Slíkt er hægt með mikilli áherslu á létta bíl og gott loftflæði og kælingu. Fyrirtækið segir að notendur ættu að komast allt að 18.000 kílómetra á ári eingöngu á sólarorkunni, samkvæmt mati Aptera sem á við um „flest svæði“. Í myndbandinu eru Tesla Model 3 og Audi R8 eins og áður segir. Þá er mikilvægt að taka fram að engar upplýsingar eru veittar um bílana sem eru ekki Aptera bílar. Þrátt fyrir það má sjá að Aptera er enginn aukvisi þegar kemur að hröðun.
Vistvænir bílar Mest lesið Hún er sögð með fagrar línur, vel byggð, rennileg og háfætt Innlent Vildi birta upptökur af ofbeldinu: „Fólk þarf að sjá til að skilja“ Innlent Heimsækja eingöngu herstöð á Grænlandi Erlent Laun bæjarstjóra vanvirðing við íbúa Innlent Vill fartölvu í fangelsið Erlent Fundu stærstu lífrænu sameindirnar hingað til í gömlu sýni Erlent Danir kveðja konur í herinn Erlent Pyttur opnaðist skyndilega á hraðbraut Erlent Gerandinn ákærður fyrir manndrápstilraun á Vopnafirði Innlent Það sem við vitum og vitum ekki í máli Ásthildar Lóu Innlent