Rafíþróttir

Dusty þurfti að sætta sig við tap þrátt fyrir frábæra byrjun

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
blast

Nýkrýndir Ljósleiðaradeildarmeistarar Dusty þurftu að sætta sig við  tap í fyrsta leik sínum á BLAST Premier mótinu í CS:GO í dag gegn danska liðinu Ecstatic.

Liðin léku á kortinu Inferno, en Dusty bannaði Vertigo, Ancient og Overpass. Ecstatic bannaði Dust2, Mirage og Nuke.

Dusty byrjaði viðureignina af miklum krafti og vann sex af fyrstu sjö lotunum og voru komnir í nokkuð góða stöðu. Þá fór hins vegar að halla undan fæti og Ecstatic minnkaði muninn í 7-6 og komust svo í 10-8.

Ecstatic jók forskot sitt og þurftu aðeins að vinna eina lotu í viðbót þegar þeir komu sér í 15-11 og leikmenn Dusty komnir með bakið upp við vegg. Dusty vann næstu lotu, en nær komst liðið ekki og Ecstatic fagnaði 16-12 sigri.

Dusty hefur þó ekki lokið keppni, en liðið mætir stjörnuprýddu liði Dignitas sem tapaði gegn Hellslayers fyrr í dag. Hellsleayers og Ecstatic mætast klukkan 14:00 og Dusty og Dignitas eigast við klukkan 15:30, en sigurliðin úr þessum tveim viðureignum eigast svo við klukkan 17:00 í ákvörðunarleik um sigur í riðlinum.


Tengdar fréttir






×