Meðalfermetra verð á íbúð í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu frá desember til mars var 624 þúsund krónur en fyrir ári var það um 550 þúsund samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá. Þá seldust tæplega 40 prósent íbúða á landinu öllu yfir ásettu verði í janúar. Þar af seldust um 45 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu yfir ásettu verði og hefur það hlutfall aldrei mælst hærra samkvæmt upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Tólf mánaða hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu nam um 22 prósent umí janúar, þar af hækkaði sérbýli um 27 prósent en fjölbýli um 21,5 prósent.
Samtök iðnaðarins bentu á í upphafi mánaðarins að það hafi ekki sést annar eins húsnæðisskortur í langan tíma. Þörfin á nýjum íbúðum nemi um 4.000 íbúðum á ári, en framboðið sé um 1.500 íbúðir. Það vanti nýtt land undir byggingar.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir brýnt að bregðast við húsnæðiskortinum.
„Það er skortur á framboði. Við erum ekki að byggja nóg til að mæta mannfjöldaspá Hagstofunnar. Það liggur fyrir að frekari aðgerða er þörf af hálfu ekki bara ríkis heldur líka sveitarfélaga. Nú er átakshópur að störfum vegna þessa þar sem sitja fulltrúar ríkis, sveitarfélaga, verklýðshreyfingarinnar og annarra aðila á vinnumarkaði þar sem verið er að móta tillögur til að mæta vandanum,“ segir Katrín.