Rafíþróttir

Fyrsta kvennadeild landsins í rafíþróttum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Fyrsta kvennadeild landsins í rafíþróttum hefur verið sett á laggirnar.
Fyrsta kvennadeild landsins í rafíþróttum hefur verið sett á laggirnar. RÍSÍ

Síðastliðinn sunnudag fóru Rafíþróttasamtök Íslands af stað með deildir í tölvuleiknum Valorant. Skráning kvenna í deildirnar var afburðagóð og því mun kvennadeild úrvalsdeildarinnar eiga sitt fyrsta tímabil.

Um það bil 130 keppendur skráðu sig til leiks í heildina og eftir því sem Rafíþróttasamtök Íslands best vita er þetta fyrsta kvennadeild landsins í nokkurri rafíþrótt.

Eins og áður segir hófust deildirnar síðastliðinn sunnudag, en þær verða í gangi til sunnudagsins 5. júní. Hægt verður að fylgjast með úrvalsdeildinni á Twitch-rás Rafíþróttasamtaka Íslands næstu þrjá sunnudaga frá klukkan 18:50. Þá verður einnig hægt að fylgjast með úrslitum deildarinnar laugardaginn 4. júní frá klukkan 17:50.






×