Talsmaður Rivian hefur viðurkennt að Vidya sé eigandi bílsins en bætti í snatri við að „afhendingar á R1S eru hafnar. Við höldum áfram að auka framleiðslugetu okkar á R1S og erum að afhenda bíla af þessari gerð,“ bætti talsmaður Rivian við.
We're just as excited as you are, new R1 owners! ✨ pic.twitter.com/lvHS15Tlyb
— Rivian (@Rivian) May 12, 2022
Afhendingar eru hafnar miðað við samfélagsmiðla Rivian. Rivian hefur tíst myndum af haningjusömum eigendum. Hingað til hefur Rivian einungis afhent R1T pallbílinn og svo tveimur starfsmönnum sínum R1S.
Í uppgjöri fyrsta ársfjórðungs sagði Rivian að afhendir hefðu verið 1227 bílar og 2552 smíðaðir. Hins vegar voru bílarnir ekki sundurliðaðir niður á undirtegund.
Rivian R1S er fáanlegur á heimasíðu Rivian með upphafsverð á 72.500 dollara eða um 9,5 milljónir króna í Explore útfærslu, sem er fjórhjóladrifin tveggja mótora bíll. Sá bíll verður ekki afhendur fyrr en árið 2024. Hægt er að fá bíl í Adventure og Launch Edition útfærslum á þessu ári, samkvæmt heimasíðu Rivian.