Ásgerður talaði þar meðal annars um mikilvægi djúpsvefns.
„Hann varir mest fyrri hluta nætur. Það að fá góðan gæðasvefn þýðir það að skapið okkar verður betra því svefn gefur tilfinningamiðstöð heilans möguleika á að hvílast,“ segir Ásgerður meðal annars í viðtalinu.
„Svefn afeitrar og veitir okkur hvíld af því að hann hefur áhrif á vöðvauppbyggingu og frumur endurnýja sig og sogæðakerfi heilans virkjast og tekur að hreinsa burt eiturefni sem safnast upp í vöku.“

Ásgerður bendir líka á að svefninn getur haft áhrif á matarlyst, hormónastarfsemi og margt annað. Ósk talar líka um það í klippunni hér fyrir neðan hvaða áhrif skertur svefn í eitt og hálft ár hafði á hennar líf og heilsu.
„Ég breyttist í zombie.“