„UEFA lætur ekki segja sér til verka,“ sagði Ceferin en nýr samningur Mbappé í París hefur verið á milli tannanna á fólki, þá sérstaklega á Spáni. La Liga, spænska úrvalsdeildin, ákvað að ganga svo langt að leggja fram formlega kvörtun vegna samningsins þar sem ekki var talið að PSG gæti boðið Mbappé nær því jafn há laun og Real gat sökum FFP-reglan UEFA.
„Reglur UEFA um fjárhagslega háttvísi eru mjög strangar. Þau félög sem virða þær reglur fá að leika í keppnum á vegum sambandsins en þau sem gera það ekki fá ekki keppnisrétt,“ sagði forsetinn í viðtali við breska ríkisútvarpið.
„Hvorki Real Madríd né nokkur annar getur sagt UEFA til verka. Þeir sjá hlutina á sinn hátt og eru ósáttir. Eftir minni bestu vitneskju var samningsboð þeirra svipað og PSG.“
Javier Tebas, forseti La Liga, hefur sagt að samningsboð PSG sé „móðgun við fótboltann“ og þá setti hann inn færslu á Twitter-aðgangi sínum þar sem hann fór yfir fjárhagslegt tap PSG á undanförnum misserum.
PSG er í eigu QSI (Qatar Sports Investments) sem er í eigu ríkisrekins fjármögnunarsjóðs í Katar. Ceferin, sem hefur verið í starfi síðan 2016, segist þreyttur á kvörtunum yfir því að aðilar eins og QSI eigi íþróttafélög.
„Ég hef sagt það margoft og segi það aftur, færið ein rök fyrir því af hverju þeir ættu ekki að fá að vera eigendur fótboltafélags.“ Hann bendir á ensku úrvalsdeildina sem dæmi en eigendur þar koma frá öllum hornum heimsins, oftar en ekki Bandaríkjunum eða Mið-Austurlöndum.
„Ég vil vita hver braut reglurnar og ef þú brýtur reglurnar verður þér refsað,“ sagði Ceferin að endingu.