Nú þegar flest lönd hafa náð ágætis stjórn á faraldri kórónuveirunnar virðist staðan þung í einu einangraðasta ríki heims, Norður-Kóreu. Lítið er vitað um hvað nákvæmlega fer fram innan landamæra ríkisins. Stjórnvöld segjast vera með fulla stjórn á útbreiðslu veirunnar en leynileg samtöl íbúa sem flúið hafa land við fjölskyldur í Norður-Kóreu gefa annað til kynna og mála dökka mynd af stöðunni.
Lyf af skornum skammti
Maður sem flúði frá Norður-Kóreu fyrir tíu árum og lætur ekki nafns síns getið af öryggisástæðum sagðist í samtali við BBC eiga reglulega leynileg símtöl við fjölskyldu sína sem enn er í landinu og segir fjölskyldan að Covid-veikindi þar séu mun meiri en stjórnvöld gefi út um. Fólk ráfi á götum úti í leit að lækningu eða lyfjum.
Doktor Nagi Shafik, sem hefur unnið fyrir Unicef í Norður-Kóreu frá árinu 2001 segir lyf í landinu af skornum skammti. Nær öll lyf séu flutt til landsins frá Kína en vegna landamæralokana síðustu tvö ár hafi nær ekkert flæði lyfja verið til Norður-Kóreu.

Íbúar óbólusettir
Heilbrigðiskerfi Norður-Kóreu er talið bágborið og landsmenn ekki bólusettir gegn sjúkdómnum. Maðurinn ónafngreindi segir stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa hvatt íbúa til að sjóða greni og drekka soðið til þess að vinna bug á Covid-veikindum.
Þá hafi fólk verið hvatt til að drekka saltvatn í sama tilgangi en til marks um það hafa þúsund tonn af salti verið flutt til höfuðborgarinnar Pyongyang ef marka má ríkismiðil þar í landi. Það skal tekið fram að engin læknisfræðileg gögn sýna fram á að þessar aðferðir vinni bug á sjúkdómnum né hemji útbreiðslu hans.
Svara ekki boðum um bóluefni
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur boðist til að afhenda stjórnvöldum bóluefni en því boði hefur ekki verið svarað. Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa einnig boðið fram aðstoð.
„Við viljum reyna að styðja við Norður-Kóreu með því að gefa þeim bóluefni, en ekki bara bóluefni heldur líka önnur lyf, en Norður-Kórea svarar okkur ekki. Við bíðum enn,“ sagði Na Kyung-Won, talsmaður forseta Suður-Kóreu.
Stjórnvöld í Norður Kóreu lýstu yfir neyðarástandi í landinu þegar fyrsta tilfellið var staðfest þann 12. maí á þessu ári. Aðeins sólarhring síðar voru sex dauðsföll af völdum sjúkdómsins staðfest.

Lægsta dánartíðni í heimi?
Hingað til hafa einungis sjötíu dauðsföll af völdum Covid verið staðfest af stjórnvöldum. Ef satt reynist er dánartíðni af völdum sjúkdómsins hvergi lægri en þar í landi sem geti ekki staðist að mati tölfræðingsins Martin Williams enda heilbrigðiskerfið ekki upp á marga fiska og íbúar óbólusettir.
Stjórnvöld hafa ekki veitt alþjóðaheilbrigðisstofnuninni aðgang að gögnum um faraldurinn í landinu. Framkvæmdastjóri neyðarmála hjá stofnuninni óttast að ný afbrigði verði til þar sem veiran fái að leika lausum hala í þessu lokaðasta ríki heims.