Fjöldamorðinginn í Toronto í lífstíðarfangelsi Kjartan Kjartansson skrifar 13. júní 2022 22:04 Sendiferðabílllinn sem morðinginn notaði til þess að fremja ódæðið í Toronto í apríl árið 2018. Vísir/EPA Karlmaður sem ók sendiferðabíl inn í mannþröng og drap ellefu manns í Toronto árið 2018 var dæmdur í lífstíðarfangelsi í dag. Hann getur þó óskað eftir reynslulausn eftir aldarfjórðung.
Tíu manns létust og sextán særðust þegar karlmaður á þrítugsaldri ók sendiferðabíl upp á gangstétt á fjölförnum vegi í Toronto fyrir rúmum fjórum árum. Kona sem særðist í atlögunni lést síðar af sárum sínum og taldi dómari í málinu hana ellefta fórnarlamb árásarmannsins. Maðurinn var sakfelldur í fyrra en ákvörðun refsingar var frestað á meðan hæstiréttur Kanada tók afstöðu til þess hvort að það stæðist stjórnarskrá að meina honum um rétt til að óska eftir reynslulausn í mörg samfelld tímabil, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Í skýrslutökum hjá lögreglu sagði árásarmaðurinn að hann hafi viljað refsa samfélaginu fyrir að hann væri skírlífur gegn vilja sínum. Hann tryði því að konur vildu ekki stunda kynlíf með honum. Fyrir dómi sagðist hann ekki sakhæfur. Morðinginn hefur verið bendlaður við hreyfingu karlmanna sem kalla sjálfa sig „Incel“ sem stendur fyrir skírlífir gegn vilja sínum á ensku. Helsta einkenni hreyfingarinnar er mikil gremja og beiskja út í konur sem karlmennirnir telja að „skuldi“ sér kynlíf.
Kanada Erlend sakamál Tengdar fréttir Incel hreyfingin: Eitruð karlmennska sem getur endað með ofbeldi Alek Menassian, maðurinn sem drap 10 manns í Toronto, tilheyrði svokölluðu Incel samfélagi. 27. apríl 2018 21:00 Mest lesið Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Vefmyndavél Vísis á Reykjanesskaganum Innlent Þreyttur á áreiti og selur Tesluna fyrir slikk Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni Innlent Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Innlent „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Innlent Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Innlent Fleiri fréttir Lýsa yfir vikulangri þjóðarsorg Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Sjá meira
Incel hreyfingin: Eitruð karlmennska sem getur endað með ofbeldi Alek Menassian, maðurinn sem drap 10 manns í Toronto, tilheyrði svokölluðu Incel samfélagi. 27. apríl 2018 21:00