Erfiðu svæðin eins og helluborðið, bakarofninn og ofnskúffurnar verða skínandi eftir yfirferð með Scrub Daddy og ein helsta áskorun allra heimilisþrifa, sturtuglerið, verður leikur einn.

Svampurinn er umhverfisvænn og í honum eru engin innbyggð hreinsiefni. En í hverju liggur þá galdurinn?
Scrub Daddy er úr sér framleiddu efni sem er þeim eiginleikum gætt að harðna undir köldu vatni en mýkjast í heitu vatni. Það er því auðvelt að aðlaga svampinn að hverju verki og stinga honum einfaldlega undir kalda bunu ef blettirnir eru erfiðir. Galdurinn felst ekki síður í áferðinni á svampinum. Hann grípur óhreinindin einstaklega vel og eins er auðvelt að skola óhreinindin úr svampinum. Hann tekur ekki í sig lykt og hægt er að nota hann í 8 vikur stanslaust án þess að hann láti á sjá. Einfalt er að skella honum í uppþvottavél til að fríska upp á hann inn á milli. Svampurinn fæst í ólíkum litum svo auðvelt er að nota einn lit á baðherbergið og annan í eldhúsinu.

Forsaga Scrub Daddy er sú að Aaron Krause hröfundur þeirra þróaði hreinsivörur fyrir bíla og seldi alla línuna á einu bretti, nema kaupandinn vildi ekki svampana. Nokkrum árum síðar dustaði Aaron af þeim rykið, fór með þá í markaðsþáttinn Shark Tank og það var eins og við manninn mælt, svamparnir slógu í gegn og eru ein söluhæsta vara allra tíma sem farið hefur í gegnum þáttinn. Þeir gerðu í framhaldinu allt vitlaust á Tik Tok og eru einn mest seldi svampurinn í Bandaríkjunum.

Scrub Daddy fæst í vefversluninni scrubdaddyisland.is þar sem einnig er hægt að kynna sér ólíkar útfærslur svampanna. Á síðunni er einnig að finna hreingerningarvörur, svo sem sprey, hreinsikrem og uppþvottalög. Vörurnar eru umhverfisvænar og án allra eiturefna og koma í endurunnum og umhverfisvænum umbúðum.
