Verðbólgan heldur áfram að aukast en hún mældist 8,8 prósent í júnímánuði og hefur ekki verið hærri síðan í október 2009 en hagfræðingar spá allt að tíu prósent verðbólgu á næstu mánuðum. Samhliða þessu virðist áralangt skeið aukins kaupmáttar á niðurleið um þessar mundir. Allt þetta kemur til með að spila inn í kjarasamningsviðræður í haust.
„Við munum sækja í rauninni alla þá kaupmáttarýrnun og lífskjararýrnun sem okkar félagsmenn verða fyrir í þessu ástandi, munum við sækja af fullum krafti og fullri hörku í næstu kjarasamningum,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Verkalýðshreyfingin hefur ítrekað kallað eftir frekari aðgerðum frá stjórnvöldum til að hlífa heimilum landsins frá miklum vaxtahækkunum og verðbólgu og bent á ýmsar leiðir til að milda áhrifin eftir heimsfaraldurinn og stríðið í Úkraínu, svo fátt eitt sé nefnt, en áhrifin eru af ýmsum toga og dugar ekki aðeins að hækka laun.
„Þetta er ekki bara launaliðurinn, það væri skammsýni að ætla sér að hækka bara launaliðinn til að standa undan öllum þeim kostnaðarhækkunum sem fólk hefur orðið fyrir,“ segir Ragnar og bendir til að mynda á hærra verð á bensíni, orku, fasteignum og leigu.
Ekki bjartsýnn á framhaldið
Á sama tíma halda þeir ríkustu þó áfram að taka meira til sín og er til að mynda horft fram á metár í arðgreiðslum.
„Við erum ekki að sjá það að fyrirtæki eða efsta lag samfélagsins sé að praktísera það sem þeir eru að predika yfir almenna vinnumarkaðinum, það er að segja að sýna ábyrgð og hófsemi,“ segir Ragnar. Þar vísar hann einnig til launahækkana þingmanna og ráðherra sem eru með öðru móti en hjá hinum almenna borgara.
Ljóst er að langt verði á milli samningsaðila í haust en til viðbótar við þau aðkallandi vandamál sem landsmenn standa nú frammi fyrir er einnig ýmislegt sem stendur út af frá síðustu kjaraviðræðum.
„Ég á von á mjög strembnum kjaraviðræðum og miðað við hvernig staðan er í dag á ég hreinlega von á átökum,“ segir Ragnar.
Hreyfingin muni gera allt til að bæta í eins og hægt er en til þess þurfi margir að koma að. Margt vanti uppá til að félagsmenn geti haldið reisn og lifað mannsæmandi lífi.
„Við höfum komið með tillögur að leiðum til þess að tala betur inn í kjarasamningana og það hefur ekki verið hlustað á okkur hingað til og ég á ekki von á að það breytist héðan af,“ segir Ragnar. „Ég er ekki bjartsýnn á framhaldið, því miður.“