Tilkynnt var um að dagar Diess væru taldir þann 22. júlí síðastliðinn, en ákvörðun hafði þá verið tekin þann 20. og Diess gefinn sólarhringur til að bregðast við. Eftir að hafa ráðfært sig við lögfræðinga virðist hann hafa ákveðið að tíminn væri kominn til að yfirgefa Volkswagen Group. Meðfylgjandi er myndband af YouTube-rás Wolkswagen Group, þar sem Diess tekur einskonar viðtal við Lynn Longo, þá nýráðin tæknistjóri CARIAD.
CARIAD var orðið eina verkefni Diess, sem hafði verið leystur undan öðrum verkefnum í desember síðastliðnum. Þær tafir sem urðu á kynningu nýrra bíla vegna deildarinnar sem Diess var yfir voru óásættanlegar fyrir Volkswagen Group, samkvæmt Bloomberg. Markmið CARIAD verkefnisins var meðal annars að gera eigendum rafbíla frá Volkswagen kleift að uppfæra hugbúnað þeirra yfir internetið, án þess að þurfa að gera sér ferð í þjónustumiðstöð vegna þess.
CARIAD var sennilega síðasta hálmstráið, en ekki það eina. Stjórnunarstíll Diess, sem virðist hafa einkennst helst af hörku einangraði hann stöðugt meira innan fyrirtækisins. Auk þess sem hann átti í talsverðum útistöðum við verkalýðsfélög yfir þeim viðvörunum sínum að VW væri að tapa fyrir Tesla og þyrfti að skera niður um þúsundir starfsfólks.