Jesús Murillo Karam leiddi rannsókn á hvarfi stúdentanna á sínum tíma en þeir hurfu á leið sinni með rútu í gegn um borgina Iguala á leið til mótmæla í Mexíkóborg. Ekkert er vitað um örlög þeirra en hluti beina úr aðeins þremur þeirra hafa fundist frá hvarfinu. Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu.
Það eina sem vitað er um atburðina sem leiddu til hvarfsins er að lögreglan í Iguala skaut á rútuna kvöldið 26. september 2014 en deilt er um hvað geriðst næst.
Hvarf stúdentanna vakti mikla athygli á sínum tíma um heim allan og leiddi til víðtækra mótmæla um Mexíkó. Mótmælendur hömruðu á fáránleika þess að opinbera starfsmenn væri ekki hægt að sækja til saka og hlutdeild ríkisins í skipulagðri glæpastarfsemi.
Karam leiddi umdeilda rannsókn á hvarfinu árið 2015 en niðurstaða rannsóknarinnar var sú að eiturlyfjahringur hafi myrt stúdentana og brennt líkamsleifar þeirra. Þáverandi forseti Mexíkó, Enrique Pena Nieto, viðurkenndi niðurstöðurnar opinberlega en sérfræðingar gagnrýndu þær vegna galla í rannsókninni og fyrir það að lögregluyfirvöld hafi ekki verið látin bera ábyrgð á sínum hluta í málinu.
Flokkur Karam, Partido Revolucionario Institucional (PRI), sakaði þá sem báru ábyrgð á handtöku hans um pólitískar ofsóknir í tísti. Karam er hæst setti embættismaðurinn sem handtekinn hefur verið í tengslum við hvarf stúdentanna.
Rannsakendur telja að stúdentarnir hafi verið handteknir af spilltum lögreglumönnum og síðan afhentir eiturlyfjasmyglurum, sem töldu nemendurna meðlimi annars gengis, sem síðan myrtu þá.
Andrés Manuel López Obrador, forseti Mexíkó, sagði í yfirlýsingu á fimmtudag að lögreglumenn bæru að hluta til ábyrgð á fjöldamorðinu. Ef ekki beina ábyrgð þá hefðu þeir ekki sinnt skyldum sínum. Hann bætti því við að rannsaka þyrfti frekar hlut lögregluyfirvalda í fjöldamorðinu.
Fyrr á þessu ári opinberaði Obrador að meðlimir mexíkóska hersins væru til rannsóknar fyrir að hafa spillt sönnunargögnum á vettvangi þar sem líkamsleifar stúdentanna fundust. Þá kallaði hann eftir því að þeir lögreglumenn sem bæru ábyrgð í málinu yrðu sóttir til saka.