Fréttin er unnin upp úr fréttatilkynningu frá Polestar.
Gert er ráð fyrir því að Polestar 6 LA Concept útgáfan komi á markað árið 2026. Um er að ræða frumútgáfu af Polestar 6, sem mun verða framleiddur seinna. LA Concept útgáfan státar af mörgum eiginleikum frá Polestar O2 hugmyndabílnum sem var kynntur í mars á þessu ári.
„Mikill áhugi viðskiptavina okkar sýnir að töfrandi rafknúinn roadster eins og Polestar 6 hefur mikla þýðingu í sportbílaheiminum,“ segir Thomas Ingenlath, forstjóri Polestar. „Niðurfellanlegt þak og rafmagn er augljóslega samsetning sem höfðar jafnvel til harðasta bílafólks.
Polestar ætlar að opna fyrir pantanir fyrir óbreytta útgáfu af Polestar 6 seinna á þessu ári. Sá bíll fer í framleiðslu þegar 500 eintök af LA Cocept úgáfunni hafa verið framleidd.

Þar sem Polestar 6 er nú formlega hluti af vörulínunni, áætlar Polestar að setja fjóra nýja rafbíla á markað innan fimm ára. Þetta hefst með heimsfrumsýningu fyrsta rafknúna jeppa fyrirtækisins – Polestar 3 – í október 2022. Fyrirhugað er að Polestar 3 verði fylgt eftir með Polestar 4 rafknúnum jeppa árið 2023 og Polestar 5, rafknúnum 4 dyra GT byggðum á Precept hugmyndabílnum, árið 2024.