Rafíþróttir

Tilþrifin: Eiki47 tekur út tvo Þórsara og klárar lotuna

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Eiki47 á Elko tilþrif kvöldsins.
Eiki47 á Elko tilþrif kvöldsins.

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GOeftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Eiki47 í liði Fylkis sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Í stöðunni 13-8, Þórsurum í vil, var Eiki47 einn eftir í liði Fylkis gegn tveimur meðlimum Þórsara, þeim ReaN og miNideGreez!.

Eiki47 þurfti því einn síns liðs að verja bombuna á svæði B í Ancient-kortinu og tók út báða meðlimi Þórs á svipstundu og kláraði lotuna fyrir Fylki.

Þrátt fyrir þessi tilþrif Eika47 voru það þó Þórsarar sem höfðu betur í viðureigninni, 16-14, og er því enn með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Fylkismenn hafa hins vegar unnið einn leik og tapað tveimur af sínum fyrstu þrem leikjum.

Klippa: Elko tilþrif: Eiki47 tekur út tvo Þórsara og klárar lotuna





×