Leikhléið sem allir eru að tala um: „Mariam, þú ert gjörsamlega út á þekju“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. október 2022 11:00 Ágúst Þór Jóhannsson talar við Mariam Eradze í leikhléinu. S2 Sport Valskonur eru áfram ósigraðar á toppi Olís deildar kvenna í handbolta eftir sigur á Íslandsmeisturum Fram í gærkvöldi. Leikhlé Ágústs Þórs Jóhannssonar, þjálfara Vals, vöktu sérstaka athygli.
Valskonur byrjuðu leikinn ekki vel og voru fjórum mörkum undir, 4-8, þegar Ágúst tók leikhlé eftir tólf mínútna leik. Ágúst talaði hreina íslensku í þessu leikhléi og kveikti vel í sínu liði með beinskeyttum skilaboðum. Hér fyrir neðan má sjá þetta leikhlé hjá Ágústi en hann beindi orðum sínum sérstaklega til lykilleikmannsins Mariam Eradze. „Mariam, þú ert gjörsamlega út á þekju. Settu þig aðeins í stand,“ sagði Ágúst með útiröddinni við Mariam. „Ef við spilum ekki f-g vörn þá gerum við ekki rassgat í þessu í dag,“ sagði Ágúst en lauk um leið reiðilestrinum og fór að tala um taktískar breytingar sem áttu eftir að ganga mjög vel. Valskonur voru búnar að jafna metin í 10-10 eftir sex mínútna leik og voru síðan þremur mörkum yfir í hálfleik, 15-12. Fram komst aftur tveimur mörkum yfir í seinni hálfleik en Valskonur unnu lokakafla leiksins 10-2 og tryggðu sér fimm marka sigur, 27-22. Klippa: Ágúst Þór Jóhannsson tók alvöru leikhlé
Olís-deild kvenna Valur Mest lesið Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn „Eigum skilið að finna til“ Enski boltinn Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Handbolti Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Sport Fleiri fréttir Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Þorsteinn Leó og félagar upp í toppsætið Uppgjör: ÍR-ÍBV 34-30 | ÍR-stelpur ekki vandræðum með Eyjakonur í Skógarselinu Vígja Mörthu í goðsagnarhöllina „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Tveir nýliðar úr Haukum í landsliðinu „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Stór helgi að Hlíðarenda: Stefnan sett á undanúrslit Gríðarleg spenna á toppnum Orri Freyr magnaður þegar það leið yfir annan dómarann Kennir sjálfum sér um ófarir Gísla Haukar halda sér í toppbaráttunni Janus Daði öflugur í súru tapi Mögnuð Elín Klara þegar Haukar unnu Stjörnuna Elvar Örn öflugur og Melsungen áfram á toppnum Selfoss sá ekki til sólar á Hlíðarenda Íslendingalið Benfica og Gummersbach halda í vonina Þriðja landsliðskona liðsins orðin ófrísk Ýmir sneri aftur í góðum sigri Sjá meira