Rafíþróttir

Tilþrifin: Viruz tekur út þrjá í þriðja sigri nýliðana í röð

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Viruz á Elko tilþrif gærkvöldsins.
Viruz á Elko tilþrif gærkvöldsins.

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það viruz í liði Breiðabliks sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Nýliðar Breiðabliks hafa verið á miklu skriði í Ljósleiðaradeildinni undanfarnar vikur, en Blikar unnu sinn þriðja sigur í röð er liðið mætti SAGA í gærkvöldi.

Liðin áttust við á kortinu Nuke þar sem Blikar höfðu að lokum betur, 16-11, og situr nú í fimmta sæti deildarinnar með átta stig, jafn mörg og LAVA sem situr í fjórða sæti og aðeins tveimur stigum á eftir toppliðunum þrem.

Eins og áður segir var það viruz sem átti tilþrif kvöldsins þegar hann tók út þrjá meðlimi SAGA á kortinu Nuke, en tilþrifin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Elko tilþrifin: Viruz tekur út þrjá í þriðja sigri nýliðana í röð





×