Mamma Alexander-Arnolds bannaði honum að fá sér tattú Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. nóvember 2022 09:30 Trent Alexander-Arnold eftir sigur Liverpool á Tottenham í úrslitaleik Meistaradeild Evrópu 2019. getty/Marc Atkins Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, segir að mamma Trents Alexander-Arnold hafi bannað honum að fá sér húðflúr eftir að liðið vann Meistaradeild Evrópu fyrir þremur árum.
Liverpool sigraði Tottenham, 2-0, í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2019. Eftir hann ætluðu Henderson og Alexander-Arnold að halda upp á áfangann með því að fá sér húðflúr. En mamma Alexander-Arnolds sagði þvert nei. Enginn bannaði Henderson hins vegar að fá sér tattú og hann lét flúra mynd af Meistaradeildarbikarnum og dagsetninguna á úrslitaleiknum á lærið á sér. „Ég fór og ætlaði að fá mér tattú með Trent Alexander-Arnold en mamma hans bannaði honum það á síðustu stundu,“ sagði Henderson í nýútkominni ævisögu sinni. Hann segir að Alexander-Arnold hafi fengið hugmyndina þegar þeir voru með enska landsliðinu í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar. „Hann sagði að við ættum að fá okkur tattú af Meistaradeildarbikarnum á kálfann á okkur. Þótt ég sé ekki með mörg flúr, bara af börnunum mínum, sagðist ég vera til. Hann sagðist líka hundrað prósent ætla að gera það.“ Daniel Agger, fyrrverandi leikmaður Liverpool, hjálpaði þeim Henderson og Alexander-Arnold að finna flúrara í Los Angeles sem gæti gengið í verkið. Þegar þeir ætluðu svo að fara til flúrmeistarans sagðist Alexander-Arnold ekki geta komið með því mamma hans hafi bannað honum að láta flúra sig. Henderson hélt að hann væri að grínast en svo var ekki. Alexander-Arnold hafði minnst á fyrirætlanir sínar með flúrið við bróður sinn og hann hafði sagt mömmu þeirra frá því. Og hún hringdi þá strax í Alexander-Arnold og bannaði honum að láta bleka sig. Henderson lyfti Meistaradeildarbikarnum eftir sigurinn á Tottenham á Wanda Metropolitano vellinum í Madríd 1. júní 2019. Hann var gerður að fyrirliða Liverpool eftir að Steven Gerrard yfirgaf félagið 2015.
Enski boltinn Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Körfubolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Íslenski boltinn „Ómetanlegar“ minningar Nelson feðga Sport „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Fleiri fréttir „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Sjá meira