Bodö/Glimt dróst á móti Lech Poznan en liðið sem hefur betur í tveimur leikjum kemst í sextán liða úrslitin þar sem bíða félögin sem unnu sína riðla.
Lech Poznan sló Víking út úr Sambandsdeildinni í sumar eftir mikla spennu og framlengdan seinni leik. Víkingur vann fyrri leikinn 1-0 í Víkinni en sá seinni endaði 4-1 eftir að staðan var 2-1 fyrir pólska liðið eftir venjulegan leiktíma.
Poznan liðið komst síðan í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar með því að slá út F91 Dudelange frá Lúxemborg.
Í þessu umspili mættust annars vegar lið sem urðu í öðru sæti í sínum riðli í Sambandsdeildinni og hins vegar lið sem endaði í þriðja sæti í sínum riðli í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Bodö/Glimt varð í þriðja sæti í sínum riðli í Evrópudeildinni á eftir Arsenal og PSV Eindhoven.
- Umspilsleikirnir um sæti í sextán liða úrslitum Sambandsdeildarinnar:
- Qarabag - Gent
- Trabzonspor - Basel
- Lazio - CFR Cluj
- Bodö/Glimt - Lech Poznan
- Braga - Fiorentina
- AEK Larnaca - Dnipro-1
- Sheriff Tiraspol - Partizan
- Ludogorets Razgrad - Anderlecht