12 íslensk lið taka þátt í forkeppninni, en Blast Premier mótið er eitt það allra skemmtilegasta í CS:GO.
Forkeppnin er útsláttarmót þar sem það lið sem stendur eitt eftir vinnur sér inn þátttökurétt í næstu undankeppni. Í hverri viðureign eru leiknir þrír leikir og það lið sem fyrr vinnur tvo þeirra vinnur einvígið. Tapi lið 2 leikjum í mótinu er það úr leik.
Öll liðin sem mættust höfðu þegar tapað leik og áttu því á hættu að detta úr leik en 7 af þeim 8 liðum sem kepptu í gær komu úr Ljósleiðaradeildinni.
Lið Viðstöðu sló Breiðablik úr leik 2–0 en Viðstöðu vann 16–14 í Mirage og 16–2 í Inferno kortinu.
Þór hafði betur 2–0 gegn Fylki og vann 16–9 í Overpass og 16–7 í Vertigo.
–REJECTS– töpuðu 2–0 fyrir TEN5ION sem vann öruggan sigur 16–3 í Vertigo og 16–9 í Dust 2.
Dusty sem hafði tapað gegn SAGA í fyrstu umferð sló LAVA svo út í lok kvölds, 2–0, en leikirnir fóru 16–3 fyrir Dusty í Dust 2 og 16–13 í Nuke.
Lið Viðstöðu, Þórs, TEN5ION og Breiðabliks halda því áfram leik í mótinu en næsta umferð fer fram annað kvöld klukkan 17:00:
- Atlantic Esports Iceland – Ármann
- SAGA – Xatefanclub
- Dusty – Þór
- TEN5ION – Viðstöðu
Þau lið sem bera sigur úr býtum í þessum leikjum keppa svo klukkan 20:00 en hægt er að fylgjast með mótinu á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.